Selva Val Gardena

Selva Val Gardena

Selva - Yfir 175 km af skíðabrautum ! 

Selva er sérstaklega sjarmerandi fjallaþorp sem er staðsett í hjarta Val Gardena dals Dólómítanna. Val Gardena er mörgum Íslendingum að góðu kunnur, enda einn allra vinsælasti áfangastaður skíðaáhugafólks undanfarin ár. Selva er einn allra þekktasti skíðastaðurinn í dalnum, enda eru allar aðstæður til skíðaiðkunar á heimsmælikvarða. VITA hefur aðgang að fjölmörgum gististöðum í Selva sem henta einstaklingum, fjölskyldum eða hópum af öllum stærðum og gerðum.

Segja má að Selva sameini helstu einkennin úr menningu, hefðum og gildum Ítalíu og Austurríkis, en svæðið hefur verið nátengt Austurríki frá því í fyrri heimsstyrjöldinni. Flestir íbúar Selva eru jafnvígir á ítölsku og þýsku en þó tala þeir einnig sitt eigið tungumál, ladínó eða „retórómanska“ eins og hún er stunduð kölluð, sem á stóran þátt í að skapa bænum sinn eigin einstaka sjarma.

Útsýnið og aðstaðan í Selva er óviðjafnanleg. Töfrandi umhverfið er víst til að láta engan ósnortinn og hafa gestir og gangandi óteljandi möguleika til hverskyns iðkunar skíðaíþrótta. Þorpið sjálft liggur í um 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli og telur skíðasvæðið í heild sinni um 175 kílómetra af skíðabrautum. Hvorki fleiri né færri en 81 skíðalyfta sér um að flytja fólk á milli fjölbreyttra og ólíkra skíðabrauta og ættu því allir að geta fundið brekkur sem henta sinni getu. Að auki er boðið upp á skíðakennslu á svæðinu fyrir alla aldurshópa.

Miðbærinn í Selva lifnar við á kvöldin, þegar gestir á svæðinu taka að flykkjast á hina óviðjafnanlegu veitingastaði bæjarins. Matseldin er undir áhrifum frá ítölskum og austurrískum matarvenjum og úr verður skemmtileg blanda sem flestum líkar ákaflega vel við. Skemmtistaðir, barir og krár eru á hverju horni og er óhætt að fullyrða að engum muni leiðast í miðbænum. Eins og víða annarsstaðar í nálægum fjallahéruðum er tréskurðarlist í hávegum höfð í Selva og í miðbænum er að finna mikinn fjölda verslana sem selja útskurðarverk á heimsmælikvarða.


Gististaðir - Selva Val Gardena

Savoy  

Hótel Savoy er nýlegt og einstaklega glæsilegt hótel þar sem dekrað er við hótelgesti.  Staðsetning er frábær og hægt að skíða frá hótelinu í næstu lyftu og renna sér beint heim í lok dags.
(+)nánar

Somont  

Hótel Somont er fallegt  fjögurra stjörnu hótel, ofarlega í bænum Selva. Það er frábærlega vel staðsett við eina vinsælustu skíðabrekkuna  sem liggur frá stærsta skíðasvæðinu niður í miðbæ.
(+)nánar

Oswald 

Glæsilegt og nýlega uppgert fjögurra stjörnu hótel sem hefur notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum síðustu ár. Hótelið er stórt og tilkomumikið og allur aðbúnaður er fyrsta flokks. Hótelið er auk þess virkilega vel staðsett. Hótel Oswald býður upp mikil gæði á góðu verði.
(+)nánar

Aaritz 

Mjög gott fjögurra stjörnu hótel sem er staðsett miðsvæðis í Selva, beint á móti Ciampinoi-lyftunni. Óhætt er að fullyrða að allar vistarverur séu hinar glæsilegustu á Aaritz og er hótelið tilvalið fyrir þá sem vilja virkilega dekra við sig á meðan dvölinni stendur.
(+)nánar

Laurin 

Gæðahótel sem býður upp á framúrskarandi gistingu á besta stað í miðbæ Selva. Lyftur eru í innan við 100 metra fjarlægð og verslanir má finna handan við hornið. Hótelið er rómað fyrir hlýlegt viðmót starfsfólks og frábæran mat. Hótel Laurin er mjög vel útbúið hótel og góður kostur fyrir alla.
(+)nánar

Flora  

Hótel Flora, er lítið og snoturt 3ja stjörnu hótel í miðbæ Selva. Það er staðsett gegnt hótel Oswald og um  500 metrar eru að skíðakláfnum Ciampinoi.

 

(+)nánar

Des Alpes 

Des Alpes  er lítið og snoturt 3ja stjörnu hótel í miðbæ Selva. Það er staðsett hliðina á hótel Armin og um 400 metrar eru að skíðakláfnum Ciampinoi.
(+)nánar

Armin, Selva 

Gott þriggja stjörnu superior  hótel þar sem eigendur hótelsins Annemaria og fjölskylda hugsa vel um gesti sína.  Hótel Armin er í miðbæ Selva og um 400 metrar eru að Ciampinoi kláfnum, sem gengur upp á skíðasvæðið í Selva.  Þeir sem ekki vilja ganga, geta fengið far með hótelbílnum. Staðsetningin er því  frábær.
(+)nánar

Olympia 

Þriggja stjörnu hótel sem er staðsett í um 200 metra fjarlægð frá lyftum og í tveggja mínútna göngufjarlægð frá aðalgötu miðbæjarins í Selva. Lögð er áhersla á þægilegt og heimilislegt andrúmsloft og góða þjónustu við gesti.
(+)nánar

Serena 

Stórfínt þriggja stjörnu hótel sem er á frábærum stað í Selva, rétt við kennslubrekkurnar. Það er ekki ofsögum sagt að það megi beinlínis skíða út og inn af hótelinu - svo nálægt brekkunum er það. Á hótel Serena fæst þægileg gisting á góðu verði.
(+)nánar

Pension Europa 

Europa er 2ja stjörnu fjölskyldurekið pension á besta stað í Selva, staðsett gegnt skíðakláfnum Ciampinoi.
Margir þekkja húsið af sólarsvölunum beint á móti Ciampinoi, en þar hafa margir átt notalega stund með kaffibolla eða ölglas. Nú er búið að taka staðinn í gegn og hann er orðinn nútímalegur og mjög huggulegur.
(+)nánar

Kort af gististöðum

Vissir þú ...

... að sænska skíðagoðsögnin Ingemar Stenmark æfði iðulega í brekkunni við La Villa, sem síðan er gjarnan við hann kennd. Stenmark er af mörgum talinn besti svigmaður allra tíma.

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland