Beint í leiðarkerfi vefsins.
23. febrúar 8 nætur og heimflug um Frankfurt*
*Dvalið í 7 nætur á Ítalíu og ekið til Frankfurt síðdegis á laugardag
Gist á hótel Sheraton á flugvellinum í Frankfurt síðustu nóttina.
Akstur frá Ítalíu til Frankfurt 2.mars er innifalið í verði. Ferðin tekur lámark 10. klst.
Madonna di Campiglio er einn af þekktustu skíðabæjum Ítala. Þangað flykkist skíðafólk á öllum aldri hvaðanæva að úr heiminum á hverju ári. Bærinn stendur í dalnum Val Rendena í vesturhluta Trentino héraðsins rétt við rætur vestur-Dólómítanna.
Þetta fallega fjallaþorp liggur í rúmlega 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli og eru bæjarbúar um sjö hundruð talsins. Stutt er í skíðalyftur og kláfa úr miðbænum og liggja hæstu brekkurnar upp í allt að 2.600 metra hæð. Skíðabrekkurnar eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og henta jafnt byrjendum sem og lengra komnum.
Fjallasvæðið skiptist í fjögur mismunandi skíðasvæði sem hægt er að skíða á milli og getur fólk valið um svartar, rauðar eða bláar brekkur, allt eftir getu hvers og eins. Svæðin Pradalago og Grosté eru auðveldust á meðan svæðin Spinale og 5 Laghi fela í sér meiri áskoranir og ögranir.
Skíðasvæðið er gríðarstórt, samtals um 150 km af skíðabrautum. Lengsta einstaka skíðabrautin telur heila fimm kílómetra. Lyftur eru 57 talsins og flestar eru þær opnar frá kl. 8.30 til 16.30 alla daga. Þær geta flutt allt að 30 þúsund gesti á hverjum klukkutíma upp og niður fjöllin.
Boðið er upp á skíðakennslu á svæðinu fyrir alla aldurshópa. Með nýlegri tengingu er hægt að skíða frá Madonna yfir í tvo nærliggjandi smærri skíðabæi, Folgarida og Marilleva. Fyrrihluta dags og fram yfir miðjan dag er lífið í skíðabrekkunum en eftir að miðdegishvíldinni eða „síestunni“ lýkur og fram á kvöld færist líf í bæinn sjálfan. Miðbærinn er afar heillandi og gefa fjöldi skemmtilegra kaffihúsa og fjölbreyttra verslana honum skemmtilegan blæ.


Hótel Bertelli er gott fjögurra stjörnu hótel, frábærlega staðsett ofarlega í Madonna di Campiglio, rétt við skíðakláfinn Prada Lago. Fimm mín ganga er í miðbæinn. Allt er til alls á hótelinu og eru herbergin rúmgóð og notaleg.

Hótel All´Imperatore er 4ra stjörnu hótel, með notalegu andrúmslofti og afslappaðri þjónustu. Hótelið er 350 metra frá Spinale skíðakláfnum og skíðarútan stoppar rétt hjá hótelinu. Góður veitingastaður, setustofa, bar og heilsurækt með sundlaug.

Glæsilegt hótel og örstutt í skíðalyfturnar. Algerlega endurnýjað árið 2009 með umhverfið í huga.

Glæsilegt hótel sem Artini fjölskyldan hefur rekið af alkunnri gestrisni í 40 ár, rétt við brekkurnar í Pradalgo og í göngufæri við aðaltorgið í Madonna di Campiglio. Árið 2008 var hótelið rifið og við endurreisnina voru þægindi gesta, umhverfismál og sjálfbærni höfð í huga.
Snyrtilegt þriggja stjörnu hótel sem er staðsett rétt við efra torgið í Madonna, í rétt um 150 metra fjarlægð frá Pradalago lyftunni. Christiana er góður kostur fyrir þá sem vilja góða en látlausa gistingu á frábærum stað í Madonna á frambærilegu verði.
Hotel Garni Arnica er notalegt og gott þriggja stjörnu hótel á besta stað við torgið Piazza Brenta Alta í miðbæ Madonna. 60 metrar eru í skíðakláfinn 5 Laghi. Hótelið er fjölskyldurekið þar sem er andrúmsloft er þægilegt og gestrisni einstök.

Vinalegt og vinsælt þriggja stjörnu hótel á frábærum stað í Madonna. Hótelið er í miðbænum og er 50 metra frá skíðalyftu.

Hótel Milano er fyrirtaks þriggja stjörnu hótel í miðbæ Madonna. Stutt er að að fara í skíðalyfturnar frá hótelinu og þar er ágæt þjónusta. Hótel sem hefur verið vinsælt meðal Íslendinga undanfarin ár vegna framúrskarandi staðsetningar.

Á 3ja stjörnu hótelinu Montana býður Vidi fjölskyldan gesti sína velkomna af alkunnri gestristni. Hótelið er í hefðbundnum alpastíl og mjög vel staðsett meðskíðabrekku nánast í bakgarðinum og hægt að skíða heim á hótel.

Vingjarnlegt, fjölskyldurekið hótel á frábærum stað í Piazza Brenta Alta. Það er örstutt í skíðalyftur, brekkur og búðir, og á hótelinu sjálfu er veitingastaður og heilsulind.