Whistler - skíðaferð

Whistler - skíðaferð

Whistler - eitt besta skíðasvæði heims!

Hópferð: 9. – 19.mars 2011

Fararstjóri: Örn Kjærnested

Skíðaparadísin Whistler er í Coast fjöllunum í  British Columbia  í Kanada.  Vetrarólympíuleikarnir  2010 voru haldnir í Whistler, sem talið vera eitt allra fremsta skíðasvæði í Norður Ameríku. Snjórinn þekur gríðarstórt svæði og allar aðstæður eru í heimsklassa.  Whistler  er stærsta samfellda skíðasvæði  Norður Ameríku og er árlega á topp 5 lista helstu skíðatímarita eins og  „SKI“ , „Powder“, „TransWorld Snowboarding“  o.fl.  Skíðavertíðin nær fram á sumar, en mars er eitt besta tímabilið, þar sem kuldi getur verið býsna mikill í janúar og fram í febrúar. 

Bærinn er í 600 metra hæð og 2 kláfar auk stólalyfta flytja skíðafólk upp í fjöllin tvö  sem eru Whistler og Blackcomb. Lyfturnar eru við stórt torg efst í bænum og hótel Westin Whistler er staðsett um 200 metra frá Whistler Mountain kláfnum. 

Bærinn er einstaklega aðlaðandi með göngugötum, verslunum, listmunasölum  „après ski“ börum og veitingastöðum.  Ágætis matvöruverslun er í bænum og ekta amerísk „drugstore“.  Alls eru um 200 verslanir og 90 veitingastaðir í bænum – allt í göngufæri. Í bænum er skíðaskóli og skíðaleigur, þ.m.t. ein á hótel Westin.

Bærinn er líflegur eftir skíði og á kvöldin, enda gríðarlega vinsæll.

Ýmsar staðreyndir um Whistler:
Whistler Mountain kláfurinn teygir sig upp með fjallshlíðinni og endar í 1850 metra hæð.
Þar er feikistór veitingastaður með útsýni til allra átta og 5 mín gangur að „Peak 2 Peak“ kláfnum sem fer milli fjallatoppanna eða frá „Whistler Mountain yfir á„ Blackcomb Mountain.  Kláfurinn er glænýr og það tekur 11 mínútur að fara 4,4 kílómetra á milli tinda.  Í fjöllunum eru 17 fjallaskálar og veitingastaðir.

Yfir 200 skíðaleiðir eru í fjöllunum og lengsta rennsli eru 11 kílómetrar
38 skíðalyftur geta flutt liðlega 60 þúsund manns milli staða á hverrri klukkustund og hæsta lyftan fer í 2.284 metra hæð.

Í báðum fjöllunum eru víðfeðmar brekkur fyrir alla skíðamenn.  Grænar brekkur eru fyrir byrjendur, bláar fyrir milliklassann og svartar brekkur eru erfiðastar. Oftast er líka hægt að skíða á jökli.
Meðal snjókoma  á ári eru 10,2 metrar.

Fjarlægðir:
Frá Vancouver til Whistler eru 115 km og frá Seattle til Whistler eru liðlega 400 km.
       
Ferðatilhögun:
 
Miðvikudagurinn 9. Mars     Keflavík – Seattle
Flogið er með Icelandair og lagt af stað frá Keflavík kl. 16.55. Áætluð lending  er í Seattle  kl. 16:40 að staðartíma sama dag.  Klukkan í Seattle er 7 klukkustundum á eftir þeirri Íslensku.
Ekið á hótel Crowne Plaza, sem er vel staðsett í miðborg Seattle og tekur aksturinn tum hálfa klukkukstund.

Miðvikudagurinn 10. Mars           Seattle – Whistler
Ekið frá Seattle til Kanada og áfram upp til Whistler.  Vegalengdin er liðlega 400 km og tekur akstur með stoppi um fimm klukkustundir.  Ekið á hótel Westin þar sem dvalið verður í 9 nætur.

Miðvikudagur 10.mars til laugardags 19.mars – Whistler

Laugardagurinn 19. Mars                 Whistler-Seattle.
Ekið til Seattle og farið beint á flugvöllinn til að ná Icelandair flugi FI680 með brottför kl. 16:30, en áætluð lending í Keflavík er  kl. 06:45 að morgni sunnudags 20.mars.

Hægt er að framlengja dvöl á eigun vegum í Seattle og aðstoða sölumenn við bókun á hóteli ef óskað er.


Verð á mann:

Tvíbýli:
309.400 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 319.400 kr

Einbýli:
439.900 kr.-* og 15.000 Vildarpunktar
*Verð án Vildarpunkta: 449.900kr.

Innifalið í verði ferðar:

Flug til og frá Seattle
Akstur frá hóteli í Seattle að hóteli í Whistler
Akstur frá hóteli í Whistler á flugvöll úi Seattle
Flugvallaskattar
Gisting án fæðis á Crowne Plaza í Seattle í eina nótt
Gisting án fæðis á Westin Whistler í 9 nætur
Íslenskur fararstjóri

 Verð á skíðapassa ef bókaður um leið og ferðin: (hópaverð)
19. - 64 ára          72.600 kr.
65 ára og eldri     64.500 kr.



Lágmarksþátttaka í þessa ferð er 20 manns

 
 

Westin Resort & Spa, Whistler 

Westin Whistler hotel & Spa er mjög gott 4 stjörnu hótel og er eitt best staðsetta skíðahótelið í Whistler. Er  rétt fyrir ofan aðal skíðakláfinn Whistler Mountain og í 2ja til 3ja mínútna göngufæri frá hinum líflega og heillandi miðbæ í Whistler.  Hótelið er í tveimur álmum, sem eru tengdar saman með verslunargötu innandyra. Gestamóttakan er  flott, rúmgóð og  með þægilegri setustofu.  Allar vistarverur eru með vel búnu eldhúsi, arni og flatskjá. Hótelið er allt nýlega endurnýjað.
(+)nánar

Kort af gististöðum

Vissir þú ...

að skíðasvæðið í Whistler var opnað árið 1966

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland