Bodrum - Tyrkland - Gististaðir

Gististaðir - Bodrum - Tyrkland

ISIS Hotel & Spa 

Ferskt og flott nýlega uppgert hótel í útjaðri Gumbet. Frábært útsýni yfir Gumbet-flóa. Allt sem þarf í frábært frí - og allt innifalið.

Voyage Torba, Bodrum 

Einstaklega glæsilegt fimm stjörnu hótel með öllu inniföldu. Hótelið er í Torba, við fallegan flóa í Bodrum og er í aðeins 6 km fjarlægð frá miðbæ Bodrum. Við hótelið er einkaströnd fyrir gesti hótelsins. Á hótelinu er allt innifalið, matur og drykkir.

Kefaluka 

Glæsilegt hótel skammt utan við Akyarlar. Allt sem þú þarft til að njóta lífsins, skemmtilegur sundlaugargarður, einkaströnd, heilsulind og nokkrir góðir veitingastaðir.

Armonia 

Fallegt, nýlega endurnýjað hótel í Akyarlar. Tilvalið fyrir fjölskyldur, alveg við ströndina - og allt innifalið!

Ersan Resort & SPA, Bodrum 

Gott fjögurra stjörnu "allt innifalið" hótel með glæsilegum hótelgarði. Hótelið stendur við einkaströnd í 6 km fjarlægð frá miðbæ Bodrum.  Hótelgarðurinn á hótelinu er heill heimur út af fyrir sig

Salmakis Beach 

Sérlega huggulegt fjögurra stjörnu hótel við einkaströnd í útjaðri miðbæjar Bodrum.  Hótelið er í arabískum stíl með fallegum sundlaugargarði og einstöku útsýni. Fyrsta flokks heilsulind og líkamsræktaraðstaða er til staðar. Hálft fæði er innifalið og hægt að velja milli þriggja mismunandi veitingastaða.

Diamond of Bodrum 

Fallegt fjögurra stjörnu hótel í miðbæ Bodrum. Frá hótelinu er einstakt útsýni yfir höfnina og fagurbláan flóann.  Hótelið er einstaklega vel staðsett  og í göngufæri við verslanir, veitingastaði og þjónustu. Á hótelinu er allt innifalið, matur og innlendir drykkir.

Aegean Dream Resort 

Fjögurra stjörnu hótel á frábærum stað við ströndina með öll helstu þægindi - og allt innifalið! - Öll herbergi sem VITA býður uppá eru ný uppgerð.

Paloma Yasmin Bodrum 

Fjögurra stjörnu hótel sem fylgir einstaklega glæsilegur pakki þar sem allt er innifalið. Hótelið er staðsett rétt fyrir utan bæinn Turgutreis, sem er einstaklega fallegur og er einskonar miðstöð verslunar á landsvæðinu. Hótelið er með einkaströnd og er rómað fyrir mikil gæði í þjónustu og öllum útbúnaði.

Azka Hotel 

Skemmtilegt fjögurra stjörnu hótel við einkaströnd í rólegu hverfi u.þ.b. 1,5 kílómetra frá miðbæ Bodrum.

Parkim Ayaz 

Snoturt þriggja stjörnu hótel á frábærum stað við ströndina í Gumbet. Hótelgarðurinn er stór og fallegur með frábærri aðstöðu fyrir börn jafnt sem fullorðna. Sundlaugagarðurinn er samliggjandi ströndinni og sundlaugabarinn er einstaklega skemmtilegur, hannaður í ekta tyrkneskum stíl. Hálft fæði er innifalið.

Eken, Bodrum 

Einfalt og snyrtilegt þriggja stjörnu hótel, skammt frá ströndinni í Gumbet. Næsta nágrenni hótelsins er iðandi af lífi og verslanir, markaðir og veitingahús eru á hverju strái.

Tropicana Beach, Bodrum 

Lítið, en fallegt íbúðahótel á mjög góðum stað við ströndina í Gumbet.  Gististaður sem hentar yngra fólki sérstaklega vel, enda líf og fjör í garðinum alla daga.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar