Enska ströndin - Gististaðir

Gististaðir - Enska ströndin

Barbacan Sol 

Mjög skemmtilegt íbúðahótel sem hefur verið mikið sótt af íslenskum sólardýrkendum um langt skeið.

 

Eguenia Victoria 

Snyrtilegt og mjög vel staðsett hótel í miðbæ Ensku strandarinnar en ströndin er í um tíu mínútna göngufjarlægð. Öll aðstaða á hótelinu er til mikillar fyrirmyndar og hafa gestir aðgang að glæsilegri heilsulind.

Buenaventura IFA Hotel 

Mjög vel staðsett hótel rétt við Kashba með einstaklega skemmtilegum garði . Yfirbragð garðsins er ævintýralegt með mörgum háum pálmatrjám.  Herbergin eru rúmgóð og björt.

Parque Cristobal 

Gott íbúðarhótel þar sem gist er í sjarmerandi smáhýsum á frábærum stað á Ensku ströndinni . Aðstæður á hótelinu eru góðar og gestir hafa aðgang að líkamsrækt og heilsulind. Stutt er í verslun, þjónustu og veitingahús. Tilvalið hótel fyrir fjölskyldufólk.

Riu don Miguel 

Gott þriggja stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Hótelið er staðsett rétt hjá Tirajana breiðgötunni, þaðan sem stutt er í alla þjónustu og verslun. Ströndin er í um 1,5 kílómetra fjarlægð frá hótelinu en í stórum garði hótelsins er hægt að stunda ýmis konar afþreyingu.

Anamar 

Snyrtilegt og vistlegt 2 stjörnu íbúðarhótel á góðum stað á Ensku ströndinni. Aðeins 300 m frá ströndinni og Yumbo center og því stutt í alla þjónustu, verslanir og veitingastaði.

Roque Nublo 

Ágætt íbúðahótel sem er vel staðsett skammt hjá Yumbo verslunarkjarnanum, þar sem hinn sívinsæli Klörubar er meðal annars til húsa, og því er stutt í alla þjónustu, verslanir og veitingastaði. Ströndin er í um 10 mínútna göngufjarlægð.

Las Camelias 

Snyrtilegt og vistlegt íbúðarhótel á góðum stað á Ensku ströndinni. Hótelið hefur verið mikið sótt af Íslendingum síðustu ár og er almennt látið vel af dvölinni á Las Camelias. Hótelið er staðsett við hina fjölförnu Tirajana-breiðgötu og er stutt í veitingastaði og verslanir.

Walkirias 

Nýuppgerðar íbúðir á frábærum stað við hliðina á Jumbo Center á Ensku ströndinni. Íbúðirnar sem viðskiptavinir VITA fá eru allar ný uppgerðar sérstaklega fyrir viðskiptavini VITA og snúa þær allar að sundlaugargarðinum.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar