Beint í leiðarkerfi vefsins.

Hótel Iberostar Anthelia er glæsilegt 5 stjörnu hótel Costa Adeje megin á suðurströnd Tenerife.
Hótelið hefur glæsilega sundlaugargarða, frábæra heilsulind og fyrsta flokks veitingastaði. Þjónustan er framúrskarandi og allar vistarverur bera kem af þeim fimm stjörnum sem hótelið hefur.

Dream Hotel Gran Tacande er 5 stjörnu lúxushótel við eina fallegustu strönd Tenerife, Playa del Duque. Sundlaugargarðurinn er glæsilegur, liggur meðfram hótelinu og nær nánast niður á strönd. Nútímaleg og smart hönnun, fyrsta flokks veitingastaðir og ein glæsilegasta heilsulindin á Tenerife. Þjónustan á hótelinu þykir framúrskarandi.

Iberostar Grand hotel El Mirador er 5 stjörnu lúxus hótel í “boutique” stíl, við Playa del Duque ströndina Costa Adeje megin á suðurströnd Tenerife.
Hótelið er í falegum 2000 m2 garði með sundlaugum, sólbekkjum, sóltjöldum, handklæðum og annari fyrirtaks aðstöðu til sólbaða og afslöppunar. Allt er stílað inná klassa og glæsileika á þess lúxushóteli sem er eingöngu fyrir fullorðna og með býður gestum gistingu í fallegum svítum.

Iberostar Las Dalias er huggulegt 4 stjörnu hótel 500 metra frá Playa del Bobo ströndinni, sem er á mótum Costa Adeje og Las Americas. Einn af kostum hótelsins er er metnaðarfull skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa bæði að degi til og á kvöldin. Sundlaugargarðurinn er fallegur og skjólgóður og á veturna er ein af sundlaugunum hituð. Stutt er í veitingastaði, bari, verslanir og iðandi mannlíf.

Iberostar Bouganville Playa er gott 31/2 stjörnu hótel við Playa del Bobo ströndina sem er á mótum Costa Adeje og Las Americas. Lífleg dagskrá, fallegur sundlaugargarður og stutt á veitingastaði, bari, verslanir og fjölbreytt strandlíf