Beint í leiðarkerfi vefsins.

Gullfallegt „boutique“ hótel, sem opnaði vorið 2010. Einstaklega fallegt hótel þar sem sem hönnun, aðbúnaður og húsgögn er elegant og smart. Marmari á gólfum, falleg setustofa og bar í gestamóttöku. Gluggar ná frá gólfi til lofts og útsýni er einstakt. Hótelið er 5 hæðir með tveim litlum þakgörðum. Annar er með með smá sundlaug , hvítum leðursófum og opnum cocktailbar á kvöldin yfir sumarið. Hinn garðurinn er með nuddpotti og sauna.

Hótel Sandos Monaco er gott 4ra stjörnu „allt innifalið“, sem opnaði vorið 2010 eftir gagngerar breytingar. Gestamóttakan er stór og björt með marmara á gólfum og fínum setustofum. Sundlaugarsvæðið er allt flísalagt með sólstólum og tveimur börum. Hótelið er á Levante ströndinni, um 450 metra frá ströndinni og gamla bænum.

Melia Benidorm er fínt og flott hótel á góðum stað skammt frá Levante ströndinni. Eitt besta hótelið á í Benidorm með glæsileg sameiginleg salarkynni, frábæran sundlaugargarð og vel útbúna heilsulind.

Hótel Nadal er fallegt 3ja stjörnu hótel, við enda Levante strandarinnar á Benidorm. Við hótelið er útisundlaug með sundlaugarbar, verönd og útsýni er yfir Miðjarðarhafið.
Um leið og komið er út úr hótelinu tekur við iðandi mannlíf, en við hinn enda strandarinnar er gamli bærinn.

Gemelos 22 eru klassaíbúðir í tveimur háhýsum, vel staðsettar með góðum sundlaugargarði og fyrirtaks aðstöðu.

Levante Club íbúðirnar eru í fjórum 12 hæða byggingum, sem standa umhverfis sundlaugargarðinn. Í aðalbyggingunni er gestamóttaka með veitingasalur, bar og nettengdar tölvur. Um 200 metrar eru að Levante ströndinni.