Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gott þriggja stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Hótelið er staðsett rétt hjá Tirajana breiðgötunni, þaðan sem stutt er í alla þjónustu og verslun. Ströndin er í um 1,5 kílómetra fjarlægð frá hótelinu en í stórum garði hótelsins er hægt að stunda ýmis konar afþreyingu.
Garðurinn er með stórri sundlaug og barnalaug ásamt barnaleiksvæði, borðtennis, billiard, fótboltaspili og tennisvelli. Í garðinum er einnig bar þar sem hægt er að svala þorstanum eða fá sér létta rétti. Í nálægðri fjarlægð frá hótelinu geta gestir komist í afþreyingu á borð við vatnaíþróttir, golf (tveir vellir skammt frá), mini golf, skvass og hjólreiðaleigu. Þá geta gestir fengið aðgang að tölvum gegn vægu gjaldi. Einnig er í boði að leigja ísskáp inn á herbergin gegn gjaldi.
Herbergin eru björt og notaleg og búin öllum helstu nauðsynjum, s.s. síma, sjónvarpi, öryggishólfi (gegn gjaldi) og loftviftu, að ógleymdum fínum svölum. Svefnpláss er fyrir þrjá fullorðna. Öll herbergin eru ný uppgerð. Hálft fæði er innifalið í gistingu á Riu Don Miguel.
Farþegar VITA hafa verið sérstaklega ánægðir með þjónustu og viðmót starfsfólksins á hótelinu og þykir andrúmsloftið þar einstaklega gott.
ATH. Hótelið er eingöngu fyrir 18 ára og eldri.