$item_att14915

Baobab

Glænýtt og hreinlega óviðjafnanlegt fimm stjörnu lúxushótel á Meloneras svæðinu. Hótelið opnaði í vor og er hluti af Lopesan-hótelkeðjunni sem einnig rekur lúxushótelin Villa del Conde og Costa Meloneras á Kanarí sem margir Íslendingar hafa átt góð kynni við. Gisting á Baobab er einfaldlega upplifun út af fyrir sig og er VITA stolt af því að geta boðið viðskiptavinum upp á þetta einstaka hótel.

Hönnun hótelsins er undir miklum áhrifum frá Afríku, og ber umhverfið, húsgögnin og flestar vistarverur þess greinileg merki. Þessi sérstaka hönnun skapar virkilega hlýlegt og sjarmerandi umhverfi sem hentar sérstaklega vel til afslöppunar og endurnæringar á líkama og sál.
Herbergi hótelsins eru frábær, virkilega fáguð og fallega innréttuð. Hönnun þeirra er nútímaleg en jafnframt undir sterkum afrískum áhrifum. Herbergin eru innréttuð í mildum brúnum lit sem skapar sérstakt andrúmsloft og á að skapa vellíðan hjá gestum. Herbergjunum fylgja meðal annars svalir eða verönd, loftkæling, hárþurrka, sími, flatskjár, öryggishólf, mini bar og internet aðgangur (gegn gjaldi).

Hótelið hefur sérstaklega gott aðgengi fyrir fatlaða, auk þess sem 20 herbergi hótelsins eru sérstaklega hönnuð fyrir fatlaða. Á þeim eru stærri dyr, meira gólfpláss og húsgögn sem eru sérstaklega valin með tilliti til fatlaðra.

Hægt er að velja á milli þess að fá hálft fæði eða eingöngu morgunverð í gistingunni. Á hótelinu eru þrír veitingastaðir og er úrvalið afar fjölbreytt. Í boði eru klassískir og alþjóðlegir réttir en einnig sérhannaðir og framaandi réttir sem eiga rætur sínar að rekja til Afríku. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Garðurinn er sérlega glæsilegur. Í honum má finna gerviströnd og hvorki fleiri né færri en átta upphitaðar sundlaugar. Börnum er gert sérstaklega hátt undir höfði því fyrir þau hefur verið skapaður sérstakur heimur, Panchi World, þar sem að möguleikinn á því að láta sér leiðast er einfaldlega ekki fyrir hendi. Sundlaugagarðurinn er í raun veröld út af fyrir sig þar sem gestir eru alltaf að uppgötva eitthvað nýtt.

Fyrir þá sem vilja spila golf er Baobab tilvalinn kostur. Tveir golfvellir eru í innan við þriggja kílómetra fjarlægð og ef pantað er með fyrirvara mun hótelið sjá fyrir flutningi golfvöllinn - án endurgjalds.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
35 km
Miðbær:
1 km

Aðstaða

Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Hótelherbergi
Fæði:
Morgunverður eða hálft fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Skipt á rúmum:
7 x í viku
Handklæðaskipti:
3 x í viku
Þrif:
7 x í viku

Heimilisfang

c/Mar Adriatico, 1 35100 Meloneras Gran Canaria

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar