Beint í leiðarkerfi vefsins.
Snyrtilegt og vistlegt íbúðarhótel á góðum stað á Ensku ströndinni. Hótelið hefur verið mikið sótt af Íslendingum síðustu ár og er almennt látið vel af dvölinni á Las Camelias. Hótelið er staðsett við hina fjölförnu Tirajana-breiðgötu og er stutt í veitingastaði og verslanir, þar á meðal Yumbo-verslunarmiðstöðina þar sem hinn sívinsæli Klörubar er staðsettur. Ströndin er tæplega tíu mínútna göngufæri.
Íbúðirnar eru tiltölulega litlar, en þó hlýlegar og vel búnar. Þeir eru með einu svefnherbergi og rúma allt að þrjá fullorðna. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd sem snúa inn í garðinn. Greiða þarf fyrir afnot á sjónvarpi.
Garðurinn er ágætur til sólbaðsnotkunar og er notalegt að stinga sér í nokkuð stóra sundlaugina þess á milli.
Avd. Tirajana 15 35100 Playa del Ingles