Beint í leiðarkerfi vefsins.
Einkar fallegt fjögurra stjörnu hótel sem er með suðrænu yfirbragði, staðsett steinsnar frá ströndinni. Hótelið opnaði árið 2004 og eru allar vistarverur því nýtískulegar og afar glæsilegar. Aðstaðan á hótelinu er framúrskarandi góð og stendur gestum til boða ótal möguleikar á íþróttaiðkun og vellíðunarmeðferðum. Frábært hótel.
Herbergin eru fyrsta flokks og sérstaklega vel búin. Hægt er að velja á milli þess að hafa hálft fæði innifalið í gistingu eða eingöngu morgunmat. Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir, hver öðrum betri.
Garðurinn er stór og fallegur með frábærri sólbaðsaðstöðu sem og möguleikum á hverskyns afþreyingu. Í garðinum eru tvær stórar sundlaugar, barnalaug, og barnaleiksvæði. Hótelgestir geta tekið handklæði af herbergjum og notað í garðinum og á ströndinni gegn tryggingu. Þá er glæsilegur tennisvöllur á hótelinu, skvassvöllur og meira að segja keilubraut. Þá er að sjálfsögðu glæsileg heilsulind og góð almenn líkamsræktaraðstaða.
Cordial Mogan Playa Av los Marreros 4 Mogan Gran Canaria