Beint í leiðarkerfi vefsins.
Frábært hótel sem var algjörlega endurnýjað á síðasta ári og byggt upp samkvæmt nýjustu straumum og stefnum. Útkoman er virkilega huggulegt og nýtískulegt hótel þar sem allt er innifalið.
Hótelið stendur í um tveggja mínútna göngufjarlægð frá ströndinni en í um fimm mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Kos. Hægt er að fá herbergi fyrir 1-2 gesti eða fjölskylduherbergi og rétt eins og hótelið allt eru herbergin mjög fallega innréttuð og vel útbúin. Allt er innifalið í gistingunni en á hótelinu er einn „a la carte" veitingastaður og einn hlaðborðsveitingastaður.
Sundlaugagarðurinn er afar glæsilegur og skartar frábærri aðstöðu fyrir börn og þá sem vilja stunda íþróttir. Á hótelinu er einnig fullkomin heilsulind. Ábendingar: Það tekur u.þ.b. 15 mínútur að hjóla til Kos frá Sun Palace, en reiðhjól eru sérstaklega hentugur fararskjóti á Kos.
Psalidi 85300, Kos island - Greece