Mjög skemmtilegt íbúðahótel sem hefur verið mikið sótt af íslenskum sólardýrkendum um langt skeið.
Hótelið er staðsett miðsvæðis á Ensku ströndinni er þekkt fyrir heimilislegt andrúmsloft og góða þjónustu.
Hægt er að velja á milli þess að gista í íbúð eða smáhýsi. En hvoru tveggja var tekið í gegn árið 2011.
Íbúðirnar eru með einu eða tveimur svefnherbergjum. Allar íbúðirnar eru með vel búnu eldhúsi og rúmgóðum svölum. Vegna lögunar og legu hótelsins er mjög misjafnt hversu mikil sól skín á svalir herbergjanna, einhverjar svalir eru með sól allan daginn en aðrar fá ekki sól.
Smáhýsin eru aðeins stærri en íbúðirnar, öll með tveim svefnherbergjum og tveim baðherbergjum. Þau dreifast um garðinn í kringum hótelið, við hvert smáhýsi er verönd og eins er sólbaðsaðstaða ( með sólbekkjum) á þaki húsanna.
Gistingin er mjög góð og allar vistarverur eru mjög snyrtilegar og rúmgóðar. Hægt er að velja um að vera með ekkert fæði, morgunverð eða hálft fæði ( morgunverði go kvöldverð).
Garðurinn er mjög skemmtilega hannaður með sundlaug og barnalaug.
Á hótelinu er skemmtidagskrá yfir daginn og mjög góð aðstaða er til ýmis konar íþróttaiðkunar.
Fjarlægðir
Flugvöllur:
30 km
Miðbær:
300 m
Strönd:
1,5 km
Veitingastaðir:
150 m
Matvöruverslanir:
150 m
Aðstaða
Fjöldi hæða:
4
Gestamóttaka:
Já
Sundlaug:
Já
Barnasundlaug:
Já
Aðstaða fyrir fatlaða:
Já
Billiard:
Já
Veitingastaðir:
Já
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Lyfta:
Já
Bar:
Já
Skemmtidagskrá:
Já
Vistarverur
Herbergjategund:
Íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum
Fæði:
Morgunverður eða hálft fæði
Svalir/Verönd:
Já
Loftkæling:
Já
Sjónvarp:
Já
Sími:
Já
Nettenging:
Nei
Hárþurrka:
Nei
Öryggishólf:
Já gegn gjaldi
Ísskápur:
Já
Kaffivél:
Já
Brauðrist:
Já
Skipt á rúmum:
2 x í viku
Handklæðaskipti:
3 x í viku
Þrif:
5 x í viku
Heimilisfang
Avda. Tirajana, 27 35100 Playa del Inglés, Maspalomas (Gran Canaria)
Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.
Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.