Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gott fjögurra stjörnu "allt innifalið" hótel með glæsilegum hótelgarði. Hótelið stendur við einkaströnd í 6 km fjarlægð frá miðbæ Bodrum.
Sundlaugagarðurinn er heimur út af fyrir sig, með leiktækjum, vatnsrennibrautum og fjölbreyttri skemmtidagskrá á kvöldin frá júní fram í ágúst. Við einkaströnd hótelsins eru sólbekkir og auðvelt að komast í ýmis konar vatnasport. Á hótelinu er handklæðaþjónusta, einnig kaffihús, smáverslanir og margir barir, bæði inni og úti.
Hægt er að velja á milli fimm veitingastaða og þar af eru fjórir sérrétta veitingastaðir, ítalskur, mexíkanskur, tyrkneskur og sjávarrétta. Á þeim stöðum þarf að greiða aukalega fyrir drykki. Aðalveitingastaður hótelsins er með hlaðborði þar sem matur og allir innlendir drykkir eru innifaldir. Greiða þarf fyrir drykki og annað, ef tekið af minibarnum á herbergi, nema vatnið er frítt.
Á Ersan er glæsileg heilsulind og líkamsrækt. Greiða þarf fyrir aðgang og einnig fyrir allar meðferðir eins og t.d. nudd.
Boðið er upp á ýmsar tegundir herbergja:
Herbergi í aðalbyggingu með "frönskum svölum", (20 fermetrar).
Herbergi með sjávarsýn í aðalbyggingu með "frönskum svölum", (20 fermetrar).
"Franskar svalir" eru þannig að hægt er að opna út og er lítið grindverk fyrir, en hvorki er hægt að ganga út, né sitja á svölunum.
Herbergi í smáhýsi með svölum eða verönd, (33 fermetrar). Fjölskylduherbergi í smáhýsi með svölum eða verönd. Þar eru tvö aðskilin svefnherbergi.
Ersan er fyrirtakshótel með flottri aðstöðu.
İçmeler P.K. 357 48400 Bodrum / MUĞLA / TURKEY