Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sérlega huggulegt fjögurra stjörnu hótel sem stendur við klettaströnd, rúmlega kílómeter frá Bodrum. Herbergin eru rúmgóð og snyrtileg og þau sem snúa að sjónum hafa einstakt útsýni. Öll hönnun á hótelinu er í arabískum stíl og þykir heilsulindin vera sérstaklega endurnærandi.
Líkamsræktaraðstaða er sömuleiðis fyrsta flokks og eru nokkrar úti- og innisundlaugar á hótelinu. Þó ber að geta þess að aðgangur að líkamsræktinni fæst einungis gegn aukagjaldi. Á hótelinu er hálft fæði innifalið þar sem hægt er að velja á milli kræsinga á glæsilegu hlaðborði hótelsins. Þess má geta að á hótelinu eru einnig tveir "a la carte" veitingastaðir sem greiða þarf sérstaklega fyrir að snæða á.
Rétt er að benda á að á hótelinu er mikið um tröppur og aðgangur að lyftu er takmarkaður á sumum svæðum hótelsins. Við mælum með því að þeir sem eiga erfitt með gang horfi til annara gististaða.
Hótelið býður upp á strandar- og sundlaugarhandklæði fyrir gesti sína.
Bardakci Koyu S/n
Bodrum
48400
Turkey