Parque Cristobal

Parque Cristobal

Gott íbúðarhótel þar sem gist er í sjarmerandi smáhýsum rétt hjá hótel Barbacan Sol á á Ensku ströndinni. Aðstæður á hótelinu eru góðar og gestir hafa aðgang að líkamsrækt og heilsulind. Stutt er í verslun, þjónustu og veitingahús. Tilvalið hótel fyrir fjölskyldufólk.

Smáhýsin eru snyrtileg og er hægt að fá þau ýmist með einu eða tveimur svefnherbergjum. Smáhýsi með einu svefnherbergi er 48,56 m2 og rúmar allt að þrjá fullorðna, og smáhýsi með tveimur svefnherbergjum er 56,70 m2 og rúmar allt að fimm fullorðna.

Í smáhýsunum er fín eldunaraðstaða með ískáp, örbylgjuofni, kaffivél og fl. Að auki er loftvifta, öryggishólf, gervihnattarsjónvarp, sími og verönd með húsgögnum og sólbekkjum. Hótelið er með sérstök smáhýsi fyrir fatlaða. Vinsamlega hafið samband við skrifstofuna ef óskað er eftir slíkum smáhýsum.

Garðurinn er er stór og mikill, enda er svæðið eins og lítið þorp. Við sundlaugarsvæðið er meðal annars lítill vatnagarður með nokkrum rennibrautum. Leiksvæði og barnalaug er á sérstökum stað á svæðinu og boðið er upp á barnaklúbb og unglingaklúbb. Á daginn eru ýmislegar skemmtanir á vegum hótelsins og á kvöldin er oft lifandi músík og skemmtanir fram eftir kvöldi.

Hótelið býður upp á ýmiskonar afþreyingu sem að gestir hafa aðgang að, t.d. líkamsrækt, fitness, borðtennis, tennis, minigolf, blak, strandblak, fótbolta, körfubolta og fleira.

Veitingastaður er á hótelinu fyrir gesti með fæði. Hótelgestir geta líka keypt morgunverð á 9 Evrur á mann á dag.  Ef pantað er fyrirfram fyrir allan dvalartímann er verðið 7 Evrur á mann. Að auki er "a la Carte" og þema veitingastaður sem að gestir geta pantað sér borð á.

Ströndin er í um 1,7 km fjarlægð og hótelið er með skutlu á sínum vegum sem keyrir á milli hótels og strandar þrisvar sinnum á dag, gestum að kostnaðarlausu.

Gestir geta valið að hafa allt innifalið. Vinsamlega hafið samband við skrifstofu okkar ef áhugi er á því.

Tilvalið fjölskylduhótel þar sem að allir í fjölskyldunni finna eitthvað við sitt hæfi.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
30 km
Miðbær:
Í miðbæ
Strönd:
Um 800 metrar
Veitingastaðir:
Á hóteli og í nágreninu
Matvöruverslanir:
Í nágreninu

Aðstaða

Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já, gegn gjaldi í gestamóttöku
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Smáhýsi með einu eða tveimur svefnherbergjum
Svalir/Verönd:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Nei
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Já, gegn gjaldi
Ísskápur:
Skipt á rúmum:
1x í viku
Handklæðaskipti:
2x í viku
Þrif:
5x í vikur

Heimilisfang

c/ Holanda s/n

Cran Canari


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar