Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fjögurra stjörnu hótel sem fylgir einstaklega glæsilegur pakki þar sem allt er innifalið. Hótelið er staðsett rétt fyrir utan bæinn Turgutreis, sem er einstaklega fallegur og er einskonar miðstöð verslunar á landsvæðinu. Hótelið er með einkaströnd og er rómað fyrir mikil gæði í þjónustu og öllum útbúnaði.
Hótelið er fallega innréttað og öll herbergi eru með útsýni yfir Miðjarðarhafið. Hægt er að velja um tvenns konar herbergi. Palace herbergi í aðalbyggingunni og Myndos herbergi sem eru í smáhýsum við hótelið. Báðar tegundir herbergja eru svipað innréttaðar en Palace herbergin eru ögn stærri.
Sérstakt andrúmsloft ríkir á þessu einstaka hóteli og fyrir neðan það er falleg og notaleg sandströnd sem aðeins hótelgestir hafa aðgang að.
Glæsileg íþróttaaðstaða er við hótelið en þar er meðal annars líkamsræktarstöð, strandblakvellir, tennisvellir og körfuboltavellir auk þess sem hægt er að skemmta sér á himinbláum og volgum sjónum í ýmsum íþróttum og fara á brimbretti í öldunum. Þá er boðið upp á ýmsar skemmtanir, svo sem morgunleikfimi, pílukast, dansnámskeið, fótbolta, sundleikfimi og að sjálfsögðu diskótek.
Garðurinn er einkar glæsilegur. Þar eru sundlaugar með vatnsrennibrautum, slökunarlaug, upphituð innilaug og barnalaugar. Í heilsulind hótelsins er hægt að láta dekra við sig svo um munar. Þar er hægt að fara í tyrkneskt bað, nudd og á sama stað er einnig snyrtistofa.
Mikið er innifalið í gistingunni. Aðgangur að hlaðborðum allan daginn, a la Carte veitingastað með ítölskum og tyrkneskum mat og sjávarréttarstað. Auk þess hafa gestir aðgang að ýmsum snakkbörum þar sem má næla sér í góðgæti þegar hverjum og einum hentar. Allir innlendir drykkir, bæði áfengir og óáfengir, eru innifaldir.
Paloma Yasmin hótelið er frábært hótel og það er ekki að ástæðulausu að margir vilja hvergi annarsstaðar dvelja.
Yasmin Hotel Bodrum
Kadıkalesi Mevkii, Turgutreis. Bodrum
48800 Muğla - Türkiye