Marina Vista

Marina Vista

Fallegt og sérlega rómantískt fjögurra stjörnu hótel á allra besta stað í Bodrum. Hótelið er staðsett í miðbænum, alveg við smábátahöfnina, þaðan sem útsýnið yfir höfnina og hafið er stórbrotið.  Stutt er í alla þjónustu og allar vistarverur hótelsins eru mjög góðar. 

Herbergin eru fremur lítil en þó mjög hugguleg. Þjónustan er rómuð hafa gestir það gjarnan á orði að hún sé persónuleg, enda eru aðeins 80 herbergi á hótelinu. Heilt yfir er óhætt að fullyrða að andrúmsloftið á hótelinu sé vinalegt. 

Við hótelið er huggulegur garður þar sem er góð aðstaða til að stunda sólbað og að sjálfsögðu er lítil sundlaug í garðinum fyrir þá sem vilja kæla sig niður. Hægt er að fá lánuð strandhandklæði endurgjaldslaust en nokkur spölur er í baðströnd, eða um 20 mínútna gangur.

Á efstu hæð er A la Carte veitingastaður með stórbrotnu útsýni yfir hafið. Morgunmatur er innifalinn í verði en auðvelt er að finna fjölbreytta og góða veitingastaði stutt frá hótelinu. 

Fólk kemur aftur og aftur á Majesty Marina Vista hótelið vegna staðsetningarinnar og einstaklega þægilegs andrúmslofts. 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
40km
Miðbær:
Í miðbænum
Strönd:
1,5 km
Veitingastaðir:
50m
Matvöruverslanir:
50m

Aðstaða

Fjöldi hæða:
3
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Nei
Líkamsrækt:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Nei
Lyfta:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Hótel herbergi
Fæði:
Morgunverður
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Nei
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Gegn gjaldi
Minibar:
Skipt á rúmum:
2 x í viku
Handklæðaskipti:
3 x í viku
Þrif:
7 x í viku

Heimilisfang

Neyzen Tevfik Cad No 226
Bodrum 48400
Tyrklandi


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar