Beint í leiðarkerfi vefsins.
Glæsilegt fimm stjörnu hótel sem er staðsett við ströndina í Psalidi í skemmtilegu umhverfi. Natura Park Village er nýr gististaður hjá VITA en hótelið var tekið í notkun árið 2009 og hefur hlotið frábær viðbrögð hjá þeim sem þar hafa dvalið. Allt er innifalið í gistingunni og er af nógu að taka, hvort sem horft er til afþreyingar, mats eða drykkja.
Hótelið er í raun stór smáhýsabyggð, þar sem flest húsin eru parhús með nokkrum herbergjum í sama húsinu. Herbergin eru með einu svefnherbergi, en hægt er að fá herbergi með svefnsófa sem hýsir þá tvo fullorðna og eitt barn. Einnig er hægt að fá stærra fjölskylduherbergi, með tveimur tengdum svefnherbergjum, sem hýsir þá tvo fullorðna og tvö börn.
Öll herbergin eru afar vel búin, með loftræstingu, ísskáp, svölum og verönd. Öll húsin, 23 að tölu, eru byggð á nýstárlegan og íburðarmikinn hátt.
Hótelið stendur við strönd, en um 5km eru til miðbæjar Kos. Hægt er að taka strætó beint frá hótelinu að miðbænum.
Ambrosia veitingastaðurinn er hótelinu er rómaður fyrir góðan mat og þar eru vegleg hlaðborð í boði fyrir gesti á morgnana, í hádeginu og á kvöldin. Innlendir drykkir (gos, bjór og léttvín hússins) fylgja einnig með gistingunni. Millimáltíðir á borð við snakk, samlokur, pizzur og fleira stendur gestum til boða yfir daginn.
Á hótelinu er góð aðstaða til líkamsræktar. Á hótelinu er leikjasvæði fyrir yngstu kynslóðina, tvær stórar sundlaugar og tvær barnalaugar. Sólbaðsaðstaða er mjög góð og hafa gestir aðgang að bekkjum og handklæðum frá hótelinu í sundlaugagarðinum og á ströndinni. Þá er þráðlaust internetsamband viðvarandi á hótelsvæðinu (aðgengilegt gegn gjaldi). Á hótelsvæðinu er einnig að finna litla matvöruverslun þar sem allar helstu nauðsynjar eru fáanlegar.
Natura Park Village
Psalidi
Kos GR-85300
Greece