Paraiso de Albufeira

Paraiso de Albufeira

Gott fjögurra stjörnu hótel, staðsett miðja vegu milli aðal verslunargötunnar í Albufeira og gamla miðbæjarins. Staðsetningin er því einkar góð. Hægt er að velja um þrennskonar íbúðir á hótelinu með allt upp í tveimur svefnherbergjum. Allt til alls er á hótelinu; frábær sundlaugagarður með stórum og góðum laugum og flottri aðstöðu þar sem meðal annars er hægt að spila mini-golf. Umhverfið er barnvænt og til dæmis er stór grasflöt í garðinum þar sem hægt að er hlaupa um. Ströndin er ekki nema í um 15 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu.

Íbúðirnar eru góðar en þær eru þrenns konar, stúdíó íbúðir, íbúðir með einu eða með tveimur svefnherbergjum. Þær eru mjög vel útbúnar, bjartar og fallegar.

Stutt er í alla þjónustu en lítil búð er inni á hótelinu þar sem hægt er að kaupa helstu nauðsynjar. Veitingastaðir og kjörbúð eru í næsta nágrenni auk þess sem mjög stutt ganga er á skemmtistaði og bari.

Hótelið er mjög vinsælt og er rómað fyrir staðsetninguna og gott andrúmsloft.

Paraiso de Albufeira útvegar gestum sundlaugar-  strandhandklæði gegn gjaldi.  Hvert handklæði kostar 1 EUR á dag, auk þess er greidd trygging uppá 5 EURsem fæst endurgreidd þegar handklæðinu er skilað aftur.

Ein íbúð á hótelinu (m/1 svefnherbergi) er með hjólastólaaðgengi en þá íbúð þarf að sérpanta í gegnum skrifstofu VITA.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
45 km
Miðbær:
1 km
Strönd:
1 km
Veitingastaðir:
250 m
Matvöruverslanir:
250 m

Aðstaða

Fjöldi hæða:
8
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Billiard:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já gegn gjaldi 5 EUR per klst.
Lyfta:
Bar:
Innilaug:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Studio og íbúðir m/1 og 2 svefnherbergjum
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Nei - eingöngu á sameiginlegum svæðum
Öryggishólf:
Já gegn gjaldi 2,50 EUR á dag auk tryggingar uppá 25 EUR
Ísskápur:
Kaffivél:
Brauðrist:
Örbylgjuofn:
Skipt á rúmum:
3 x í viku
Handklæðaskipti:
5 x í viku
Þrif:
6 x í viku

Heimilisfang

Rua Municipio Lote 31,
Albufeira 8200-161,
Portúgal


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar