Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gott og eftirsótt íbúðahótel á allra besta stað við Playa de las Americas ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjölskyldufólk og ungt fólk á öllum aldri unir sér í frábærum sundlaugargörðum, við ströndina og svo er örstutt að skreppa í búðir á veitingastaðinn eða hvert annað sem hugurinn leitar.
Vart er hægt að hugsa sér betri staðsetningu á hóteli. Verslunarhús, minni verslanir, veitingahús, barir og önnur afþreying er götumegin við hótelið og hinum megin er ströndin. Undir hótelinu eru göngugötur með mörgum veitingastöðum, m.a. spánskum, ítalskum og kínverskum. Barir, kaffihús og alls konar ferðamannabúðir eru í næsta nágrenni. Þar sem hótelið er stórt getur verið langt að fara frá gestamóttöku að íbúðum. Ekki eru lyftur í öllum byggingum.
Íbúðirnar eru í tveimur byggingum og liggja tveir sundlaugagarðarnir saman. Garðarnir eru með þeim bestu á Tenerife. Gríðarlega stór sundlaug og fyrirtaks sólabaðsaðstaða, með sólbekkjum sem ekki þarf að greiða fyrir. Glæsilegur vatnsrennibrautargarður og barnalaug er í garðinum sem og barnaleikvöllur fyrir yngstu kynslóðina. Stutt er síðan stór og glæsileg líkamsrækt var opnuð.
Íbúðirnar eru góðar og vel hugsað um þær. Hægt er að velja um stúdíóíbúðir, íbúðir með einu svefnherbergi og stofu eða íbúðir með tveimur svefnherbergjum og stofu. Stærri íbúðir geta verið á tveimur hæðum en eru aldrei á jarðhæð. Í öllum herbergjum er eldhúskrókur eða eldhús, stofa, gervihnattasjónvarp, sími, öryggishólf og svalir. Hægt að leigja örbylgjuofn og DVD spilara í gestamótöku.
Parque Santiago sé frábær kostur á Tenerife – á góðu verði.
Urb Santiago Avda. Litoral s/n Playa del las Americas 38660 Arona, Tenerife, Islas Canarias, Spain