La Siesta

La Siesta

La Siesta er gott  fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Americas ströndinni. Hótelið er þriggja hæða bygging, U-laga, með með fallegum garði, sundlaug og barnalaug, heilsulind og skemmtidagskrá.

 

La Siesta er á besta stað á Playa de as Americas. Stutt er til strandarinnar og

göngugatna þar sem verslanir, barir, veitingahús og kaffihús eru á hverju strái og örstutt yfir að hótelunum Villa Cortes, Vulcano, Best og  Parque Santiago.

 

Hótelið býður upp á skemmtidagskrá á hverjum degi fyrir alla aldurshópa. Leikir í sundlauginni á daginn og lifandi tónlist, skemmtiatriði og diskó á kvöldin. Á staðnum er hárgreiðslustofa, heilsurækt, tækjasalur og heilsulind.

 

Hægt er að velja um að gista í hefðbundnum herbergjum eða svokölluðum „Club Alexandre”  herbergjum. Venjulega herbergin eru misstór, en öll rúmgóð. Þau eru loftkæld með hárþurrku, sjónvarpi, síma öryggishólfi, smábar og litlum setkrók.

 

Club Alexandre herbergin eru jafn stór og hefðbundin herbergi, en þau eru öll með

garðsýni og betur útbúnum baðherbergjum. Gestir fá baðsloppa, inniskó og aðgang að heilsurækt hótelsins alla daga.

 

„Magic Park“ eða Töfragarðurinn, er stærðarinnar skemmtigarður sem staðsettur er á hótelinu og er hugsaður fyrir börn á öllum aldri. Garðurinn skiptist í tvö svæði. Annars vegar svæði fyrir krakka á aldrinum 2-9 ára. Á því svæði eru rennibrautir, ýmis leiktæki, leiksvið og aðstaða þar sem krakkar geta litað og málað. Hins vegar er svæði fyrir eldri börn og fullorðna með leiktækjum, fótboltaspilum, keilu, borðtennis, billiarð-borðum o.fl. Greiða þarf fyrir aðgang að flestum tækjunum.

 

„El Drago“ er veitingasalur hótelsins, bjartur og huggulegur. Þar ganga gestir að morgunverði og kvöldverði af hlaðborði.  Snakkbar er á sundlaugarsvæðinu og á hótelinu er einnig þægilegur píanóbar þar sem gjarnan er skemmtidagskrá á kvöldin.

 

Vikulega eru þemakvöld á hótelinu og eru þau ýmist inni eða úti. Þar má nefna Kanaríeyjakvöld, ítölsk kvöld og grillsveislu í garðinum.

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
15 mín akstur
Miðbær:
Er í hjarta Playa de las Américas
Strönd:
200 - 300 metrar
Veitingastaðir:
Allt um kring
Matvöruverslanir:
í göngufæri

Aðstaða

Fjöldi hæða:
3
Gestamóttaka:
já, opin allan sólarhringinn
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Billiard:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já í sameiginlegu rými
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
"Standard" og "Club Alexandre" herbergi
Fæði:
Hálft fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Ekki á herbergjum
Hárþurrka:
Öryggishólf:
já, gegn gjaldi
Minibar:
Skipt á rúmum:
3 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Avenida Rafael Puig, 2138660 Playa de las Americas, Spain


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar