Beint í leiðarkerfi vefsins.
H10 Conquistador er gott fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Américas. Hótelið telur sex hæðir, hefur 448 herbergi og stendur við strönd. Við hótelið er fallegur garður, með tveimur sundlaugum, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, snakkbar og veitingastað.
Despacio Thalahasso heilsulindin er með ýmsar meðferðir, byggðar á sjávarvatni og alla daga er dagskrá í gangi fyrir ýmsa aldurshópa. Þar eru auk þess nuddpottar, sauna, tyrkneskt bað og að sjálfsögðu góður tækjasalur. Þar má fá gegn gjaldi ýmsar meðferðir til heilsubótar.
Staðsetning hótelsins er á besta stað á Playa de Americas, Beint aðgengi er að göngugötunni, sem liggur meðfram ströndinni þar sem finna má fjölda verslana af ýmsu tagi. Barir, veitingahús og kaffihús eru á hverju strái. H10 Conquistador er við hliðina á hótelnu Villa Cortes skammt frá hótelunum Vulcan og Parque Santiago sem einhverjir ættu að kannast við.
Hægt er að velja um að gista í herbergjum eða júníor svítum. Herbergin eru öll loftkæld með hárþurrku, sjónvarpi og síma. Öryggishólf og ísskáp þarf að panta í móttöku og greiða fyrir afnot á meðal dvöl stendur. Greiða þarf 2 Evrur á dag fyrir leigu á ísskáp. Hótelið getur ekki ábyrgst að ávallt séu til ísskápar.
Junior svíturnar eru mjög rúmgóðar með góðu rúmi og að auki 2ja sæta sófa sem hægt er að breyta í svefnsófa. Skilrúm er á milli rúms og sófa. (sjá mynd). Ísskápur er í junior svítum.
Vegna lögunar og legu hótelsins er mjög misjafnt hversu mikil sól skín á svalir herbergjanna, einhverjar svalir eru með sól allan daginn en aðrar fá ekki sól.
Garðurinn er fallegur miklum og litríkum gróðri og þaðan er útsýni fagurt yfir Atlantshafið. Þar er snakkbar sem og fyrirtaks grill veitingastaður þar sem hægt er að sitja úti að snæðingi undir beru lofti.
Á hverjum degi er skipulögð skemmtidagsrá í hótelgarðinum, leikir og önnur skemmtilegheit við sundlaugarnar. “Mini Club Daisy” er barnaklúbbur fyrir 4 til 12 ára krakka, með leiksvæði, barnasýningum, bíómyndum aðstaða þar sem hægt er að lita og mála.
Í móttökunni komast hótelgestir í tölvu og þar með internet gegn greiðslu, en frítt þráðlaust net er í sameiginlegu rými.
„Tajinaste" er veitingasalur hótelsins og er morgunverður og kvöldverður framreiddur þar. Kokkar veitingastaðarins elda ýmsa ljúffenga rétti fyrir framan matargesti og töfra fram nýjungar á hverju kvöldi.
ATH. Mögulegt er að sérpanta herbergi með aðstöðu fyrir fatlaða
Av. Rafael Puig, 36, E-38660, Playa de las Américas, Tenerife