Mediterranean Palace

Mediterranean Palace

Hótel  Mediterranean Palace er gott og einstaklega vel staðsett hótel  miðsvæðis á Playa de las América og steinsnar frá strönd. Sundlaugargarðurinn er ævintýralegur er rómverska sundlaugin mjög sérstök, 300 femetrar og umkringd rómverskum styttum. Önnur laug 1000 fermetrar og umhverfis hana eru gosbrunnar og geysifínt sólbaðssvæði.

Hótelið er heill heimur útaf fyrir sig með sínum ævintýralegu sundlaugargarði , veitingastöðum, börum og snakkbörum . Aðal veitingastaður hótelins býður uppá girnilegt hlaðborð alla daga með úrvali af þjóðlegum og alþjóðlegum réttum, auk þess að vera með sérstök þemakvöld.  Hægt er sitja úti eða inni (fer þó eftir veðri).

The Beach Club, við Playa del Camisón,  er notalegur staður við sjóinn. Þar er borinn fram matur á daginn, en á kvöldin breytist staðurinn í stóran bar og mörg kvöld er skemmtidagskrá með lifandi tónlist.

Atlantis  “Chill out”
Mjög spes sólbaðsstaður á fjórðu hæð hótelsins.
Sundlaug, töff bar með fínum kokteilum,  flottir  sófar og sólbekkir.  Opinn alla daga og fram á kvöld.

Snakkbarinn Marco Antonio er fínn fyrir létt hádegissnarl og er með ágætan krakkamatseðil.  Heilsu- og  safabarinn við sundlaugina er með fersk salat og nýkreistan djús.

Á hótelinu eru 535 herbergi , öll loftkæld með síma, sjónvarpi, öryggishólfi, hárþurrku og verönd eða svölum. Herbergi snúa ýmist yfir garðinn og sundlaugina eða að götu. Þráðlaust net  er í sameiginlegu rými.

Lifandi og líflegur hótelkompleks með sundlaugum, barnalaugum, nuddpottum og þremur tennisvöllum. Einnig mini-golf,  líkamsrækt, tækjasalur og alls kyns íþróttatímar eins og aerobikk, tai chi og jóga. Borðtennis, billjard og prógramm í garðinum alla dag.

Hárgreiðslustofa, smáverslanir og klúbbar fyrir börn og unglinga. Öll barnaaðstaða til fyrirmyndar. Heilsulindin “Mare Nostrum SPA Thalassotherapy Centre” er svo annar  heimur og sjón er sögu ríkari.

Líf og fjör fyrir lífsglatt fólk!

Fjarlægðir

Flugvöllur:
15 - 20 mín akstur
Miðbær:
í miðbæ
Veitingastaðir:
á hóteli og allt um kring

Aðstaða

Fjöldi hæða:
4 til 6
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Barnadagskrá:
Tennisvöllur:
Billiard:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Frítt í gestamóttöku
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Tvíbýli
Fæði:
Morgunverður eða hálft fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Já, frítt
Minibar:
Skipt á rúmum:
Daglega
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Avenida de las Américas, 5, Arona, Tenerife, Spain


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar