Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gott þriggja stjörnu íbúðahótel á Playa de las Américas, staðsett um 500 metra frá miðbænum og Playa de Troya ströndinni. Hótelið var allt endurnýjað árið 2002 og er haldið vel við. Veitingastaðir, verslanir og barir eru í göngufæri og 5 mínútna akstur er á golfvöllinn.
Fínn sundlaugargarður er á hótelinu, með sundlaug og barnalaug. Í garðinum eru sólbekkir, snakkbar með billjarð-borði og leiksvæði fyrir krakkana og þar eru stundum haldnar skemmtilegar grillveislur með lifandi tónlist. Meira þó á sumrin en veturna.
Á hótelinu er bar, veitingasalur með hlaðborði, setustofa, bar og lítil matvöruverslun. Einnig er stutt að fara í stærri matvörumarkað. Á hótelinu er tækjasalur og tennisvöllur.
Á Tropical Playa eru bæði stúdíóíbúðir og íbúðir með einu svefnherbergi og stofu. Allar íbúðir eru loftkældar og koma með eldhúskrók, örbylgjuofni, ísskáp, sjónvarpi, síma, svölum eða verönd og öryggishólfi gegn gjaldi. Það eru tvö einbreið rúm í stúdíóum - enginn sófi
Hótelið býður uppá hálft fæði (morgunverð og kvöldverð) á 17 EUR á dag fyrir fullorðna og 8,50 EUR fyrir börn. - Hægt er að ganga frá því beint við hótelið eftir komu til Tenerife
Calle Bolivia, S/N, 38660 Adeje,Tenerife,Spain