Albir Playa

Albir Playa

Mitt á milli listamannabæjarins Altea og hins líflega Benidorm bæjar er hið frábæra hótel Albir Playa í stuttu göngufæri við Albir ströndina og kristaltæran sjóinn. Vinalegt andrúmsloft, frábær aðstaða og notaleg stemmning einkenna Albir Playa.

Á hótelinu er margt í boði, meðal annars fjölbreyttar dekur-meðferðir í glæsilegri heilsulind, þráðlaus nettenging og frábærar sundlaugar bæði fyrir börn og fullorðna. Létt er að hafa ofan af fyrir börnum á leikvelli hótelsins og við barnasundlaugina. Heimsókn í Terra Mitica skemmtigarðinn sem er að finna í næsta nágrenni er skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna.

Fyrir þá sem vilja hreyfa sig þá er mögulegt að leigja reiðhjól í gestamóttöku og njóta þess að hjóla eftir langri strandlengjunni. Í nágrenninu er einnig að finna flotta golfvelli sem henta byrjendum sem lengra komnum.

Herbergin eru fallega innréttuð og nokkuð rúmgóð, öll með loftkælingu og svölum.

Fæði: Hálft fæði ( morgunverður og kvöldverður).

Hótelið er með handklæði til leigu fyrir hótelgesti. Greiðar þarf €10 í tryggingargjald, sem fæst endurgreitt í lok dvalar ef gestir hafa passað að skila handklæðum. Þessi handklæði má nota bæði í garðinum og fara með á ströndina.

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
68 km
Miðbær:
10-15 mín gangur
Strönd:
1 km
Veitingastaðir:
200 m
Matvöruverslanir:
við hliðina á hótelinu

Aðstaða

Fjöldi hæða:
6
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Billiard:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já , endurgjalds laust
Lyfta:
Bar:
Innilaug:

Vistarverur

Herbergjategund:
Hótelbergi
Fæði:
Hálft fæði ( morgunverður og kvöldverður)
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Já, frítt
Öryggishólf:
Já, gegn gjaldi 4 EUR á dag
Minibar:
Skipt á rúmum:
3 x í viku
Handklæðaskipti:
7 x í viku
Þrif:
7 x í viku

Heimilisfang

Camino Viejo de Altea, 51 - 03581 Playa de Albir - L'Alfas del Pi - Alicante


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar