Limak Lara De Luxe Hotel & Resorts

Limak Lara De Luxe Hotel & Resorts

Hótel Limak Lara er glæsilegt 5 stjörnu hótel við Lara ströndina, skammt frá Antalya.  Sundlaugarðurinn er risastór, gróðursæll og gengið er úr garðinum beint út á mjúka sandströnd.
Frábær sameiginleg aðstaða, úrvals veitingastaðir, glæsilegur sundlaugargarður, flott heilsulind fín staðsetning og einstaklega falleg herbergi.
 
Á hótelinu eru 455 herbergi og svítur, nýtískuleg og fallega innréttuð í japönskum stíl.
Herbergi er loftkæld, með garð- og sjávarsýn, hárþurrku, gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi, smábar, tónlistarrásum, síma og svölum. Aðgengi að neti er gegn gjaldi.
  
Hótelið býður „allt innifalið þjónustu“ og ganga gestir að vel útilátnum kræsingum á hlaðborði í veitingasalnum ZEN. Panta þarf og greiða væga þóknun til að borða á sérrétta veitingastöðunum, sem m.a. bjóða ítalskan mat og tyrkneskan. Gestir geta valið um mismunandi bari innan dyra sem utan, hvort sem er að degi eða á kvöldin.  Lifandi tónlist er flest kvöld og lífleg skemmtiatriði frá ýmsum löndum.

Heilsa og vellíðan skipar stóran sess á Limak Lara. Þar er heilsulindin „SAGOL“ með tækjasal, upphitaðri, risastórri innisundlaug, sauna, nuddpottum og tyrkneskt gufubaði. Færustu nuddarar eru til þjónustu reiðubúnir og hefur gestum þótt spennandi að prófa súkkulaðinudd!

Nóg er um afþreyingu á hótelinu. Leikir í sundlauginni á daginn og skemmtidagskrá á kvöldin. Tækjasalur, skvass, tennis og pílukast.  Á ströndinni eru sólbekkir og sólhlífar.

Bent skal á að öryggisgæsla á hótelum á Lara Beach er ströng og utanaðkomandi komast ekki inn á hótelin. Þannig getur vinafólk ekki heimsótt hvort annað á milli hótela.

Hótel Limak Lara de Luxe er frábær kostur fyrir fagurkera, sem vilja fyrsta flokks hótel.

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
13 km - 15 mín
Miðbær:
Antalya borg, 25km - 30 mín
Strönd:
Við strönd
Veitingastaðir:
Á hóteli

Aðstaða

Fjöldi hæða:
6
Gestamóttaka:
já,
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
já gegn gjaldi á herbergjum
Lyfta:
Bar:
Innilaug:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Standard tveggja manna herbergi
Fæði:
Allt innifalið
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
já, gegn gjaldi
Minibar:
Skipt á rúmum:
Tvisvar í viku og eftir þörfum
Handklæðaskipti:
Daglega og eftir þörfum
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Kemerağzı Mevkii P.k. 34, Antalya

Aðrar upplýsingar

Veitingastaðir með sérþjónustu "a la carte" eru nokkrir á hótel Limak Lara. Panta þarf borð á þessum stöðum og greiða gjald á sumum þeirra:

 Verð á mann:
Mexíkanskur        9 Evrur á mann
Ítalskur   9 Evrur á mann
Sushi  9 Evrur á mann
Tyrkneskur   Ekkert aukagjald
IndverskurEkkert aukagjald
Fiskur   Ekkert aukagjald
GrillEkkert aukagjald

Athugið að útiveitingastaðir geta verið lokaðir í október og nóvember.
Foreldrar geta farið með börn á þessa veitingastaði.

 


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar