Miracle de Luxe Resort

Miracle de Luxe Resort

Hótel Miracle de Luxe Resort er 5 stjörnu hótel við Lara ströndina, mjög nýtískulegt og smart. Gestamóttakan er stór og þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Hótelgarðurinn er mjög stór og fallegur og beint fyrir framan hótelið og garðinn er 150 metra löng sandströnd til einkaafnota fyrir hótelgesti.  Hótelið er mjög stórt og þar er líf og fjör allan daginn og langt fram á kvöld. Veitingastaðir, líflegir barir, fyrirtaks heilsulind og rúmgóð herbergi.

Á hótelinu eru 703 herbergi og svítur á 10 hæðum. Herbergin eru fallega innréttuð í ljósum litum, annaðhvort með tveimur rúmum eða hjónarúmi, hægt að setja inn aukarúm. Ljós teppi á gólfum. Herbergi eru loftkæld, með hárþurrku, gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi, smábar, tónlistarrásum, síma og frekar stórum svölum. Baðherbergin eru meðalstór, einnig í ljósum litum. Baðkar með sturtu. Aðgangur að neti er gegn gjaldi.

Hótelið býður „allt innifalið þjónustu“og er matur á hlaðborði í aðal veitingastað hótelsins. Ef gestir vilja borða á einhverjum af sérrétta veitingastöðunum, þarf að panta fyrirfram og greiða aukalega. Á borðum
er alþjóðegur matur, tyrkneskur, kínverskur og að sjálfsögðu ítalskur. Barir eru fjölmargir; lobbýbar, sundlaugarbar, diskóbar, heilsubar og „barinn í brúnni„. Lifandi tónlist er á kvöldin.

Heilsulindin er með 176 fermetra heitri innilaug, nuddpottum, sauna, tækjasal með aerobikk tímum og tyrkneskt gufubað. Nudd- og aðrar heilsumeðferðir auk snyrti- og hárgreiðslustofu.

Auðvelt er að komast í sport og ýmsar vatnaíþróttir. Starfsmenn hótelsins halda uppi prógrammi í sundlauginni á daginn og við hótelið eru fótboltavellir, einnig borðtennis, tennis og sér leiksvæði fyrir krakka. Á ströndinni eru sólbekkir og sólhlífar og þar komast gestir í sjósport, en hvað er í boði fer eftir árstíma.

Á hótelinu eru einnig smáverslanir og næturklúbbur.

Bent skal á að öryggisgæsla á hótelum á Lara Beach er ströng og utanaðkomandi komast ekki inn á hótelin. Þannig getur vinafólk ekki heimsótt hvort annað á milli hótela.

Hótel Miracle de Luxe Resort er hótel fyrir ungt fólk á öllum aldri, sem vill líf og fjör.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
14 km
Miðbær:
11 km í miðborg Antalya
Strönd:
Við strönd
Veitingastaðir:
Á hóteli

Aðstaða

Fjöldi hæða:
10
Gestamóttaka:
Já, opin allan sólarhringinn
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Standard tveggja manna með og án garðsýnis
Fæði:
Allt innifalið
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
já, gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
já, gegn gjaldi
Minibar:
Skipt á rúmum:
Tvisvar í viku og eftir þörfum
Handklæðaskipti:
Daglega eða eftir þörfum
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Kopakcayi Mevkii
Antalya Lara 07230, Tyrkland

Aðrar upplýsingar

Veitingastaðir með sérþjónustu "a la carte" eru nokkrir á hótel Miracle Resort. Panta þarf borð á þessum stöðum og greiða gjald á sumum.
Athugið að útiveitingastaðir geta verið lokaðir í október og nóvember.
Foreldrar geta farið með börn á þessa veitingastaði.

Miracle Resort 
Ítalskur   10 Evrur á mann
Tyrkneskur   10 Evrur á mann
Mexíkanskur10 Evrur á mann
Fiskur10 Evrur á mann

 

 

 

Ef hótelgestir  greiða fyrir aðgang að einum sérréttastað fá þeir frítt á einn til viðbótar.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar