Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hótel Nadal er fallegt 3ja stjörnu hótel, við enda Levante strandarinnar á Benidorm. Við hótelið er útisundlaug með sundlaugarbar, verönd og útsýni er yfir Miðjarðarhafið.
Um leið og komið er út úr hótelinu tekur við iðandi mannlíf, en við hinn enda strandarinnar er gamli bærinn.
Hótelið er frekar lítið, einungis 40 herbergi og selt með morgunverði. Á hótelinu er ágætur veitingastaður þar sem hinn frægi hrísgrjónaréttur Paella er gjarnan á boðstólum í hádeginu, ásamt öðrum þjóðlegum og alþjóðlegum mat. Notalegt er að sitja úti á kvöldin með glasi af góðu víni og horfa á sólarlagið. Aðgangur að interneti er í sameiginlegu rými hótelsins
Herbergi eru björt og innréttuð í ljósum litum. Herbergin eru með sjónvarpi, síma, hárþurrku og svölum. Þau taka tvo fullorðna, eða tvo fullorðna og eitt barn, 2ja til 12 ára.
Stutt er niður á strönd þar sem úrval af alls kyns sjósporti er til reiðu.
Avenida de Madrid 41,
03503 Benidorm, Spain