Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hótel Mediterraneo á Benidorm er nýlegt, nútímalegt 4ra stjörnu hótel, ofarlega í bænum. Hótelið er byggt í U em umlykur stóra sundlaug, barnalaug og aðstöðu með sólbekkjum. Um 20 til mínútna gangur er niður í gamla bæinn og Levante ströndina, en stutt er í bari, veitingastaði og verslanir. Strætó stoppar beint fyrir framan hótelið.
Hótelið er er með 176 herbergi og selt með hálfu fæði. Á hótelinu er kaffitería, veitingastaður og bar. Allt sameiginlegt rými er rúmgott og snyrtilegt. Fyrirtaks aðstaða er fyrir krakkana og einnig er á hótelinu upphituð innisundlaug, nuddpottur og tækjasalur.
Herbergi eru ágætlega rúmgóð, öll með hárþurrku, sjónvarpi, smábar, öryggishólfi, verönd eða svölum og aðgangi að interneti. Herbergin taka hámark 3 fullorðna og 1 barn eða 2 fullorðna og 2 börn.
Gegnt hótelinu er hinn frægi næturklúbbur Benidorm Palace og 200 metrum frá eru skemmtigarðarnir Aqualandia og Mundomar.