Beint í leiðarkerfi vefsins.
Villa Cortes er 5 stjörnu lúxúshótel, vel staðsett við ströndina á Playa de las Américas. Á hótelinu er fallegur sundlaugargarður, íburðarmikil herbergi, heilsulind, setustofur og fyrsta flokks veitingastaðir. Hótelið er byggt eins og mexíkanskur herragarður og hrein upplifun að dvelja þar.
Á hótelinu eru 151 falleg herbergi, innréttuð í mexikóskum stíl. Íburðarmikil og glæsileg, málverk á verkum, efnismikil gluggatjöld, lampar og mublur af fínustu sort. Herbergin eru loftkæld, öll með baðslopp, hárþurrku, sjónvarpi, öryggishólfi, smábar, tónlistarrásum, síma og svölum eða verönd. Internet tenging í flestum herbergjum.
Hægt er að sérpanta lúxus svítur.
Veitingastaðir hótelsins eru sex að tölu. Á veitingastaðnum Veracruz svigna borðin undan ljúffengum kræsingum bæði þegar borinn er fram morgunverðug og einnig á kvöldin þegar kokkarnir skarta sínu besta og töfra fram girnilega rétti. Mexikóski maturinn á veitingastaðnum Pancho Villa þykir einn sá besti á Playa de las Americas. Hinn eðalfíni Tiziano er þegar þú vilt fara fínt út að borða og svo er hinn þýski Brauhaus með mjög góðan mat.
Þrír barir eru á Villa Cortes, einn í gestamóttöku, annar er píanóbar með lifandi tónlist og svo er þægilegur strandbar.
Andrúmsloftið á Villa Cortes er einkar notalegt í garðinum er stór sundlaug og þægilegir sólbekkir. Gengið er beint úr garðinum niður á litla einkaströnd.
Heilsulindin er með tyrknesku baði og fínustu nuddarar auka á vellíðan hótelgesta. Einnig má taka vel á í tækjasalnum eða spila tennis við hótelið.
Villa Cortes er fyrir fagurkera, sem vilja aðeins það besta.
Avenida Rafael Puig, 38660 Playa De Las America, Tenerife, Spain