Sandos Monaco hotel and Spa

Sandos Monaco hotel and Spa

Hótel Sandos Monaco er gott 4ra stjörnu „allt innifalið“, sem opnaði vorið 2010 eftir gagngerar breytingar.  Gestamóttakan er stór og björt með marmara á gólfum og fínum setustofum. Sundlaugarsvæðið er allt flísalagt  með sólstólum og tveimur börum. Hótelið er á Levante ströndinni, um 450 metra frá ströndinni og gamla bænum.

Hótelið er 16 hæðir og með 199 herbergjum.  Herbergin eru þokkalega rúmgóð með með nýjum innréttingum og flísum á gólfi. Öll eru loftkæld með hárþurrku, flatskjá með gervihnatta- og tónlistarrásum, öryggishólfi, ísskáp eða smábar, síma og svölum. Á baðherberginu er hárþurrka og sturtuklefi.

Í veitingasal hótelsins er matur borinn fram á hlaðborði og innifalið í verði er morgun-, hádegis og kvöldverður.  Barirnir eru fjórir og er ávallt einhver þeirra opinn frá klukkan 10 á morgnana til klukkan 12 á miðnætti.  Áfengir drykkir sem eru innifaldir í verði eru ávallt innlendir og greiða þarf fyrri herbergisþjónustu og drykki sem eru í smábar á herbergi.  Gestir yngri en 18 ára fá ekki afgreitt áfengi á hótelinu.

Á sundlaugarsvæðinu eru sundlaug, barnalaug og barir. Skemmtidagskrá er bæði á daginn og kvöldin. Á daginn leikfimi og leikir í sundlauginni og á kvöldin troða skemmtikraftar upp með lifandi tónlist. Þráðlaust internet er í gestamóttöku.

 

Hægt er að fá sundlaugar og strandhandklæði á hótelinu, greiða þarf 10 EUR í tryggingu sem fæst endurgreidd þegar handklæðunum er skilað.

Hótel Sandos Monaco er fyrirtaks hótel fyrir alla aldurshópa

Fjarlægðir

Flugvöllur:
Um klukkutíma akstur frá flugvellinum í Alicante
Miðbær:
500 metar
Strönd:
500 metrar á Levante ströndina
Veitingastaðir:
Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

Fjöldi hæða:
16
Gestamóttaka:
Já, opin allan sólarhringinn
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Barnadagskrá:
Billiard:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Þráðlaust net, frítt
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Tveggja manna herbergi. Hægt að sérpanta aukarúm og herbergi fyrir fatlaða
Fæði:
Allt innifalið. Sjá nánar í lýsingu
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Já, frítt
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Já , gegn gjaldi 3 EUR á dag
Minibar:
Skipt á rúmum:
2 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Av. Periodista Emilio Romero, 11
03503 Benidorm – Alicante


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar