Beint í leiðarkerfi vefsins.
Confort & Nuevo Golf íbúðirnar eru í tveimur fimm hæða byggingum, sem standa sitt hvorum megin við snyrtilegan sundlaugargarð, sem er með grasflöt, 2 sundlaugum og barnalaug. Um 300 metrar eru í miðbæinn og aðrir 300 metrar að ströndinni í Albir. Nýlegar, stórar og einstaklega vel útbúnar íbúðir sem taka hámark 5 manns.
Tvær stærðir eru af íbúðum bæði með einu og tveimur svefnherbergjum. Þær eru loftkældar og með ljósum marmara á gólfum. Í íbúðunum er sjónvarp, DVD spilari, kaffivél, brauðrist, örbylgjuofn,öryggishólf, þvottavél, þráðlaust net og svalir eða verönd. Tvö baðherbergi eru í stærri íbúðunum.
Gestamóttakan er staðsett í Avenida Golf byggingunni, sem er í u.þ.b 100 – 200 metra fjarlægð. Þar eru 5 tölvur og þráðlaust internet. bókasafn, fínt kaffihorn og hafa gestir aðstöðu þarna, t.d ef beðið er eftir flugi. Rýma þarf íbúðir kl. 10 á morgnana og innritað kl. 17:00 á daginn.
Í kjallaranum á Nuevo Golf er heilsulind með stórri innisundlaug, nuddpotti og tækjasal. Greiða þarf fyrir afnot af þeirri aðstöðu.
Við komu fá gestir handklæði og rúmfatnað. Þrifið er fyrir komu og eftir brottför gesta.
Æfingasvæði fyrir kylfinga er gegnt íbúðunum.
Bulevar de los Musicos 15,
03581 Alfaz del Pi
Alicante