Beint í leiðarkerfi vefsins.
Mjög gott 4 stjörnu hótel á besta stað í hjarta Playa de las Americas. Það, sem einkennir hótelið er einstaklega falleg gestamóttaka með setustofum þar sem umhverfið minnir á lystigarð. Sundlaugargarðurinn er stór, gróðursæll og með sundlaug, barnalaug og fjölda sólbekkja.
Hótel Vulcano var allt endurnýjað árin 2004 og 2005. Ströndin er um 300 metra frá hótelinu og stutt er að göngugötum með verslunarhúsum og sérverslunum. Barir, veitingahús og kaffihús eru á hverju strái og hótelin Villa Cortes, La Siesta og Parque Santiago eru steinsnar frá hótel Vulcano.
Hótelið býður upp á skemmtidagskrá á hverjum degi fyrir alla aldurshópa. Sundleikfimi og leikir í lauginni eru á daginn. Fjölbreyttar sýningar eru á kvöldin, einnig lifandi tónlist og dans. Við hótelið er tennisvöllur og einungis 1 km er á golfvöllinn Club de Golf las Américas.
Herbergi eru 365 talsins, mjög rúmgóð og geta öll rúmað þrjá gesti. Öll loftkæld, með síma, sjónvarpi, smábar gegn gjaldi eur 1 per dag, öryggishólfi, hárþurrku og svölum eða verönd.
Herbergi sem snúa yfir sundlaugargarðinn kosta meira. Þar er öryggishólf án aukagjalds og handklæði til að nota við sundlaugina.
Í aðal veitingasal hótelsins er matur borinn fram á hlaðborði, eins og gjarnan tíðkast á Spáni og á það bæði við um morgun- og kvöldverð. Á hótelinu er einnig pianóbar og snakkbar við sundlaugina.
Hótel Vulcano er einstaklega góður kostur á sanngjörnu verði og hafa gestir verið hæstánægðir þar í gegnum tíðina.
ATH. Mögulegt er að sérpanta herbergi með aðstöðu fyrir fatlaða.