Dream Hotel Gran Tacande

Dream Hotel Gran Tacande

Dream Hotel Gran Tacande  er  5 stjörnu lúxushótel við eina fallegustu strönd Tenerife, Playa del Duque. Sundlaugargarðurinn er glæsilegur, liggur meðfram hótelinu og nær nánast niður á strönd.  Nútímaleg og smart hönnun, fyrsta flokks veitingastaðir og ein glæsilegasta heilsulindin á Tenerife.  Þjónustan á hótelinu þykir framúrskarandi.

Í nágrenni hótelsins er iðandi mannlíf og tvær af betri verslunarmiðstöðum Costa Adeje svæðisins eru í göngufæri, þar af er önnur Plaza del Duque, sem er sú fínasta á allri ströndinni. Auðvelt er að  ganga eftir strandgötunnu til á Playa de las Americas, en þangað eru liðlega 3 kílómetrar.

Á hótelinu eru 250 glæsileg herbergi og svítur í fjórum byggingum.  Auk tveggja manna herbergja er hægt að  sérpanta svítur, en í þeim eru ávallt nuddpottar. Tveggja manna herbergin eru stór og glæsileg, öll oftkæld með verönd eða svölum, interneti, gerfihnattasjónvarpi, öryggishólfi, smábar, tónlistarrásum og síma. Baðherbergin eru í stíl við annað á þessi glæsihóteli, vel útbúin með sér sturtu, baðkari, hárþurrku og snyrtivörum.

Á Dream hótel Gran Tacande eru alls fimm veitingastaðir, þar af þrír „fínir “, eins og sérréttastaðirnir „Bocoy“og „Bocana Grill“ . Á „Zurrón“ svigna hlaðin borð undan ljúffengum kræsingum og úrvals kokkar sýna hótelgestum listir sínar. Ítalski  veitingastaðurinn er einkar afslappður og svo má fá létta rétti á “Coffee og Pastry shop.”  Hótelgestir geta valið um bari, innan dyra sem utan – allt eftir því hvaða tími dagsins er og hvaða stemmningu er verið að sækjast eftir.

„VITANOVA Spa & Wellbeing centre “ er hin fullkomna heilsulind og vart hægt að ímynda sér nokkra meðferð sem ekki er í boði á þessum sælureit.  Einkum er lögð áhersla á ýmis konar heilsuböð. Meðal þess sem er á heilsulindinni er nuddpottur, tyrkneskt bað, gufubað, tækjasalur og snyrtistofa. Ótæmandi  möguleikar eru á að stunda íþróttir og aðra afþreyingu á hótelinu og á ströndinni.

Dream Hotel Gran Tacande er  glæsihótel fyrir fólk sem vill aðeins það besta.
 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
20 - 30 mín akstur
Miðbær:
í göngufæri við miðbæ Costa Adeje og 3,5 km frá Playa d.l. Americas
Strönd:
Við strönd
Veitingastaðir:
Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

Fjöldi hæða:
6
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Lyfta:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Tveggja manna herbergi Hægt er að sérpanta svítur
Fæði:
Morgunverður og kvöldverður
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Já gegn gjaldi
Minibar:
Skipt á rúmum:
Daglega
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

C/ Alcalde Walter Paetzmann, s/n 38670 Costa Adeje,Tenerife

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar