Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gullfallegt „boutique“ hótel, sem opnaði vorið 2010. Einstaklega fallegt hótel þar sem sem hönnun, aðbúnaður og húsgögn er elegant og smart. Marmari á gólfum, falleg setustofa og bar í gestamóttöku. Gluggar ná frá gólfi til lofts og útsýni er einstakt. Hótelið er 5 hæðir með tveim litlum þakgörðum. Annar er með með smá sundlaug , hvítum leðursófum og opnum cocktailbar á kvöldin yfir sumarið. Hinn garðurinn er með nuddpotti og sauna.
Er uppi á höfðanum í miðbænum milli Levante og Poniente strandarinnar og útsýni mikið yfir báðar strendurnar. Stutt er í verslanir, veitingastaði og iðandi mannlíf.
Á hótelinu eru 25 herbergi, nýtískuleg og fallega innréttuð, með viðargólfi, risastórum gluggum og miklu útsýni. Herbergi eru loftkæld með hárþurrku, flatskjá með gerfihnatta- og tónlistarrásum, öryggishólfi, smábar, expressó kaffivél, síma og nettengingu. Í stað svala eru gluggar hólf í gólf.
Baðherbergið er mjög sérstakt og er stórt baðkarið aðskilið frá svefnherbergi með gleri. Allt klætt marmara og með bestu hugsanlegu tækjum, einnig er sturtuklefi.
Veitingasalur er lítill, en fallegur og einnig með stórum gluggum og fallegu útsýni. Verönd fyrir hótelgesti og aðra er við hótelið. Hádegis og kvöldverðir eru framreiddir af sérréttamatseðli „a la carte“.
Morgunverður eða hálft fæði.
Ekta hótel fyrir brúðhjón,eða aðra sem vilja gera mjög vel við sig.