Iberostar Grand hotel El Mirador

Iberostar Grand hotel El Mirador


Iberostar Grand hotel El Mirador er 5 stjörnu lúxus hótel í “boutique” stíl, við Playa del Duque ströndina Costa Adeje megin á suðurströnd Tenerife.

Hótelið er í fallegum 2000 m2 garði með sundlaugum, sólbekkjum, sóltjöldum, handklæðum og annari fyrirtaks aðstöðu til sólbaða og afslöppunar. Allt er stílað inná klassa og glæsileika á þess lúxushóteli sem er eingöngu fyrir fullorðna og með býður gestum gistingu í fallegum svítum.

Um 25 metrar eru að hinnar fallegu Duque strönd, sem af mörgum er talin fallegasta ströndin á Tenerife. Iðandi mannlíf, barir, kaffihús, veitingastaðir og fallegar smáverslanir og verslunarhús eru í göngufæri.

Á hótelinu eru 120 fallegar svítur.  Allar svítur eru með himnasæng og verönd eða svölum. Svíturnar eru loftkældar með fataherbergi, interneti, sjónvarpi, öryggishólfi, smábar, tónlistarrásum og síma. Baðherbergi eru vel búin með aðskildu baðkari og sturtu, rakspegli, baðslopp, inniskóm og hárþurrku. 


Hótelið skartar þremur veitingastöðum og tveimur börum.  Sundlaugarbarinn er mjög huggulegur og þar má fá fyrirtaks paellu og ferskt sjávarfang auk ýmissa léttra rétta. Tosca barinn er vinsæll og opinn frá klukkan 10 á morgnana og til miðnættis. Morgunverður er borinn fram á veitingastaðnum El Mirador og þar er einnig hægt að borða kvöldverð, sem borinn er fram á hlaðborði. Glæsilegasti veitingastaður hótelsins er El Cenador þar sem réttir frá Kanaríeyjum  - gjarnan í nútíma búningi eru í fyrirrúmi.

Auðvelt er að stunda íþróttir og aðra afþreyingu á hótelinu. Vel búinn tækjasalur, borðtennis, skvass, vatnsleikfimi í  sundlauginni.  Skammt frá hótelinu er köfunarstöð þar sem bæði byrjendur og lengra komnir lagt stund á köfun. Brimbretti og alls kyns vatnasport er við strendurnar.
Sjö holu golfvöllur er í næsta nágrenni, stutt  er á aðra golfvelli og leiðbeinir starfsfólk hótelgestum með bókanir á golfvelli.

Hótel Iberostar Grand hotel El Mirador, eingöngu fyrir fullorðna og gist í svítum með himnasæng. Algjör lúxus.

ATH. Mögulegt er að sérpanta herbergi með aðstöðu fyrir fatlaða

Fjarlægðir

Flugvöllur:
25 mín
Miðbær:
Göngufæri
Strönd:
5 mín
Veitingastaðir:
á hóteli og allt í kríng
Matvöruverslanir:
göngufæri

Aðstaða

Gestamóttaka:
Já opin allan sólahringinn
Sundlaug:
Líkamsrækt:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Lyfta:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Svítur
Fæði:
Morgunverður
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Já,frítt
Minibar:
Skipt á rúmum:
Daglega
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Bruselas s/n, Costa Adeje - Tenerife


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar