Iberostar Bouganville Playa

Iberostar Bouganville Playa

Iberostar Bouganville Playa er gott 4 stjörnu hótel við Playa del Bobo ströndina sem er á mótum Costa Adeje og Las Americas. Lífleg dagskrá, fallegur sundlaugargarður og stutt á veitingastaði, bari, verslanir og fjölbreytt strandlíf.

Herbergi eru 505 talsins, látlaus  og  rúma 3 gesti. Öll herbergin eru björt og falleg og voru endurnýjuð árið 2005. Þau eru loftkæld með síma, sjónvarpi með gerfihnattarásum, smábar, öryggishólfi, hárþurrku og svölum eða verönd.  Greiða þarf fyrir leigu á öryggishólfi og smábar. Fjölskylduherbergi eru með tveimur samliggjandi rúmum og svefnsófa. Þau taka  tvo fullorðna og tvö börn 11 ára og yngri.-

Í aðal veitingasal hótelsins er matur borinn fram á hlaðborði. Alþjóðlegur matur, en áhersla lögð á matreiðslu heimamanna. Til viðbótar við hlaðborðið geta gestir farið á grillstaðinn og valið af matseðli.
Karaoke barinn er gríðarlega vinsæll hjá þeim sem vilja taka lagið og sundlaugarbarinn er undir stráþaki og þar má fá drykki og létta rétti á daginn.
Skemmtidagskráin er lífleg með lifandi tónlist, fjölbreyttum sýningum, leikjum o.fl.

Sundlaugargarðurinn er ljómandi fínn og ein sundlaug er upphituð allan veturinn. Gestum stendur til boða að fá handklæði á hótelinu til afnota í hótelgarðinum. Greiða þarf tryggingargjald í byrjun, sem fæst eindurgreitt í lok ferðar.

Tækjasalur, borðtennis, barnaklúbbur, borðtennis, tennisvellir og netþjónusta. Þrír kílómetrar eru á næsta golfvöll.

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
20 mín
Miðbær:
Göngufæri
Strönd:
5 mín frá strönd
Veitingastaðir:

Aðstaða

Fjöldi hæða:
10 til 14
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Nei
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Billiard:
Veitingastaðir:
Nettenging:
já, gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Herbergi fyrir tvo og fjölskylduherbergi fyrir fjóra. Fjölskylduherbergi eru ávallt með einu hjónarúmi og svefnsófa.
Fæði:
Hálft fæði eða allt innifalið
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
nei
Hárþurrka:
Öryggishólf:
já, gegn gjaldi
Minibar:
Skipt á rúmum:
Eftir þörfum
Handklæðaskipti:
Annan hvern dag
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

San Eugenio,Costa Adeje, Tenerife, Spain


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar