Beint í leiðarkerfi vefsins.
Iberostar Las Dalias er gott 3 stjörnu hótel 500 metra frá Playa del Bobo ströndinni, sem er á mótum Costa Adeje og Las Americas. Einn af kostum hótelsins er er metnaðarfull skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa bæði að degi til og á kvöldin. Sundlaugargarðurinn er fallegur og skjólgóður og á veturna er ein af sundlaugunum hituð. Stutt er í veitingastaði, bari, verslanir og iðandi mannlíf.
Herbergi eru 404 talsins, eru björt en látlaus og rúma 3 gesti. Þau eru loftkæld með síma, sjónvarpi, smábar, öryggishólfi, hárþurrku og svölum eða verönd. Greiða þarf fyrir leigu á öryggishólfi og smábar. Fjölskylduherbergi eru með tveimur samliggjandi rúmum og svefnsófa. Þau taka tvo fullorðna og tvö börn 11 ára og yngri.-
Í aðal veitingasal hótelsins er matur borinn fram á hlaðborði, eins og gjarnan tíðkast á Spáni og á það bæði við um morgun- og kvöldverð. Áhersla er lögð á að bjóða gestum að bragða sérrétti Kanaríeyjabúa.
Á sportbarnum Venus er stór flatskjár fyrir íþróttaleiki og kokteilbarinn Diana er með lifandi tónlist á kvöldin.
Skemmtidagskráin er lífleg með lifandi tónlist, fjölbreyttum sýningum, danskennslu, leikjum o.fl.
Tækjasalur, veggjatennis, barnaklúbbur, snyrtistofa og netþjónusta. Gestum stendur til boða að fá handklæði á hótelinu til afnota í hótelgarðinum. Greiða þarf tryggingargjald í byrjun, sem fæst endurgreitt í lok ferðar.
Hótelgestir geta tekið þátt í æfingaprógrammi og tekið þátt í leikfimi, veggjatennis, borðtennis, hjólað og spilað badminton. Einnig er prógramm með vatnsleikfimi, gönguferðum, pilates og aerobikk. Greiða þarf sérstaklega fyrir þátttöku í slíkri dagskrá. Þrír kílómetrar eru á næsta golfvöll.
Gran Bretaña
Costa Adeje - Tenerife