Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sir Antony er 5 stjörnu lúxus hótel við ströndina í Playa de Las Americas. Klassi og glæsileiki lýsa þessu lúxushóteli, en þjónusta og allur aðbúnaður er einstakur og gerist vart betri á Teneirfe. Lipurt þjónustufólk dekrar við hótelgesti og leggur sig fram um að dvölin á Sir Antony verði ánægjuleg.
Hótelið er byggt í boga og snýr yfir sundlaugargarð og strönd. Í garðinum er sundlaug og sólbekkir með þykkum og mjúkum dýnum til að sem best fari um gesti. Allt er stílað inná klassa og glæsileika á þessu yndislega lúxushóteli sem er eingöngu fyrir fullorðna.
Hótelið er við strönd á besta stað í Playa de Las Americas steinsnar frá aðal verslunargötunni. Þar er fjölbreytt mannlíf, barir, kaffihús, veitingastaðir, smáverslanir og verslunarhús.
Á hótelinu eru 70 herbergi og svítur. „Double Superior“ eru á samningi. Nútímaleg og smart, tveggja manna herbergi með verönd eða svölum og útsýni yfir garð og út á sjó. Öll eru herbergin loftkæld með þráðlausu netsambandi, sjónvarpi með gerfihnattarásum, öryggishólfi, smábar, tónlistarrásum og síma. Baðherbergi eru falleg og vel búin með síma, baðslopp, inniskóm og hárþurrku.
Við hótelið eru sex veitingastaðir og barir. Strandbarinn er sérlega notalegur og er opinn fyrir drykki og létta rétti allan daginn og fram á kvöld. Veitingastaðurinn Windsor er í fallegu umhverfi með úrvals mat. Austurlenskur matur er borinn fram á Feng Shui Asian Restaurant og steikarstaðurinn er með úrvals nautasteikur frá Argentínu. Auðvitað er líka spænskur veitingastaður með tapas réttum og úrvali af þjóðlegum réttum.
Hótel Sir Antony er einstakt hótel – klassi og lúxus alla leið.
Avda. de las Américas, s/n - 38660 ARONA, Tenerife