Melia Benidorm

Melia Benidorm

Melia Benidorm er fínt og flott hótel á góðum stað skammt frá Levante ströndinni. Eitt besta hótelið á í Benidorm með glæsileg sameiginleg salarkynni, frábæran sundlaugargarð og vel útbúna heilsulind.

Á hótelinu eru 526 björt og rúmgóð herbergi, með svalir sem snúa ýmist út á haf eða yfir garðinn. Í öllum herbergjum er gervihnattasjónvarp, sími, internet, útvarp, smábar, loftkæling, hárþurrka, marmaragólf, skrifborð, sófi og öryggishólf sem rúmar fartölvu (gegn gjaldi).

Nokkur veitingahús eru á hótelinu; El Curt er með hlaðborð, og á El Moralet og sundlaugarbarnum Chiringuito L'Illa er hægt að fá snarl og léttari rétti. Á bar hótelsins er líf og fjör.

Sundlaugargarðurinn er stór og glæsilegur, þar eru tvær stórar sundlaugar, barnalaug og sérstakt svæði fyrir börnin. Einnig er innilaug og nuddpottur. Heilsuræktin er glæsileg og þar er í boði fjölbreytt úrval snyrti- og nuddmeðferða auk þess sem hægt er að fá nudd á herbergjum.

Við sundlaugina er hægt að leigja handklæði. Greiða þarf 10 Evru tryggingagjald fyrsta daginn, sem fæst endurgreitt ef hótelgestir skila handklæðum sínum.


● Frábær sundlaugargarður
● Glæsileg heilsurækt

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
56 km - 50 mínútur
Miðbær:
2,5 km í gamla bæinn
Strönd:
400 metrar að Levante ströndinni
Veitingastaðir:
Á hóteli og allt um kring

Aðstaða

Fjöldi hæða:
23
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Barnaleiksvæði:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Tölvur í móttöku og þráðlaust net gegn gjaldi ( 12 EUR sólahringur)
Lyfta:
Bar:
Innilaug:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Herbergi
Fæði:
Morgunverður eða hálft fæði.
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Nei - eingöngu á sameiginlegum svæðum
Hárþurrka:
Öryggishólf:
já, gegn gjaldi. 1,50 EUR á dag og 10 EUR trygging.
Minibar:
Skipt á rúmum:
2 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Avenida Severo Ochoa, 1, 03500, Benidorm - Alicante SPAIN


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar