Gemelos 22, Benidorm

Gemelos 22, Benidorm

Gemelos 22 eru klassaíbúðir í tveimur háhýsum, vel staðsettar með góðum sundlaugargarði og fyrirtaks aðstöðu.

Levante ströndin er í 400 metra fjarlægð og allt í kringum hótelið eru barir, veitingastaðir og verslanir. Skammt frá hótelinu eru vatnagarðarnir Aguamar og Mundomare og einnig stutt í Benidorm Palace þar sem listamenn fara á kostum í glæsilegum sýningum á hverju kvöldi.
Handan við hornið tekur við hið fjölbreytta og skrautlega næturlíf sem er hvergi öflugra en einmitt á Benidorm.

Auðvelt að ganga eftir strandgötunni alla leið í gamla bæinn í Benidorm, sem er óviðjafnanlegur með iðandi mannlífi, fullt af verslunum og öllu því sem gerir sólarstað skemmtilegan.

Íbúðirnar eru með einu svefnherbergi, stofu og eldhúsi með ísskáp með frysti, eldavél, ofni, brauðrist og þvottavél.  Þær eru loftkældar með sjónvarpi, öryggishólfi, síma og svölum. Greiða þarf fyrir afnot af sjónvarpi.
Við hótelið er sundlaugargarður með grasflötum, pálmatrjám, stórri sundlaug  með sólbekkum.
Leiga fyrir sólbekki eru €2 á dag. Í garðinum er einnig barnalaug og leiksvæði fyrir krakkana.

Við innritun á hótel þurfa gestir að greiða €150 sem er tryggingagjald. Þessir peningar eru endurgreiddir við brottför ef allt er í lagi í íbúðinni. (Engar skemmdir, ekkert vantar).

Við hótelið eru einnig tennisvellir, innisundlaug billjarborð o.fl

Fjarlægðir

Flugvöllur:
45 km flugvellinum í Alicante
Miðbær:
2 km í gamla bæinn
Strönd:
400 metrar að Levante ströndinni
Veitingastaðir:
Allt um kring
Matvöruverslanir:
50 metrar

Aðstaða

Fjöldi hæða:
26
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Aðstaða fyrir fatlaða:
Nei
Barnadagskrá:
Nei
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Billiard:
Heilsulind:
Nei
Veitingastaðir:
Nei
Lyfta:
Innilaug:

Vistarverur

Herbergjategund:
íbúðir með einu svefnherbergi og stofu
Fæði:
Ekkert fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Ísskápur:
Brauðrist:
Skipt á rúmum:
1 x í viku
Handklæðaskipti:
1 x í viku
Þrif:
1 x í viku

Heimilisfang

Av de Ametllà de Mar, 29
03503 Benidorm, Spánn


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar