Beint í leiðarkerfi vefsins.
Compostela Beach er gott 3ja lykla íbúðahótel sem staðsett við “Laugaveginn” sem er aðalgatan við Playa del Las Américas ströndina á Tenerife. Verslunarmiðstöðin Oasis Shopping Precinct er staðsett gegnt íbúðarhótelinu. Hótelið er á fjórum hæðum, í þremur byggingum og telur 228 íbúðir. Hótelið er við ströndina og 5 gang frá miðbænum.
VITA er með íbúðir sem eru með einu svefnherbergi og stofu. Allar íbúðirnar eru bjartar með svölum eða verönd. Íbúðirnar eru vel búnar með síma, sjónvarpi, brauðrist, kaffivél og ísskáp. Hægt er að leigja öryggishólf í gestamóttöku.
Hótelgarðurinn er með upphitaðri sundlaug, barnasundlaug og mjög góðri sólbaðsaðstöðu. Gott barnaleiksvæði með sandkassa er fyrir yngstu gestina. Sundlaugarbekkir fást án endurgjalds.
The Pepe & Bodega veitingastaðurinn á hótelinu er opin frá því snemma á morgnana og langt fram eftir kvöldi. Þar er hlaðborð í morgun-, hádegis- og kvöldverð. Mögulegt er að bóka íbúð án fæðis, einungis með morgunverði eða hálfu fæði. Á snakkbarnum má fá létta rétti og drykki.
Hótelið hentar illa fyrir fólk sem er slæmt til gangs, þar sem fara þarf niður tröppur frá fyrstu hæð niður í hótelgarðinn og á veitingastaðinn.
Leiktækjasalur og netþjónusta eru í boði gegn greiðslu. Lítil verslun er í hótelinu og stutt að fara í matvöruverslanir og aðrar verslanir.
Avenida Litoral, 8, 38660 Playa de las Americas, Tenerife, Spain