H10 Gran Tinerfe

H10 Gran Tinerfe

H10 Gran Tinerfe er gott fjögurra stjörnu hótel fyrir 18 ára og eldri. Hótelið er vel staðsett við ströndina á milli Costa Adeje og Playa de las Américas. Við hótelið er falleg verönd með útsýni yfir sjóinn og ströndina. Hótelgarðurinn er með þremur sundlaugum, þar af einni upphitaðri.

Hótelið telur tólf hæðir og 348 herbergi. Despacio heilsulindin býður upp á tyrkneskt bað, nuddpotta, sauna og tækjasal. Þar einnig hægt að fá ýmsar meðferðir til heilsubótar gegn gjaldi. Tennissvöllur er við hótelið.

Staðsetning hótelsins er á milli Costa Adeje og Playa de Americas, Beint aðgengi er að göngugötunni, sem liggur meðfram ströndinni þar sem finna má fjölda verslana af ýmsu tagi. Barir, veitingahús og kaffihús eru á hverju strái. H10 Gran Tinerfe er staðsett rétt hjá hótel Iberostar Bouganville Playa sem er mörgum Íslendingum kunnugt.

Herbergin eru öll loftkæld með hárþurrku, sjónvarpi og síma. Öryggishólf og ísskáp þarf að panta í móttöku og greiða fyrir afnot á meðal dvöl stendur. Hótelið getur ekki ábyrgst að ávallt séu til ísskápar.
Á hótelinu eru einnig Junior svítur, sem eru allar í nútímalegum stíl og verulega fallegar. Þær eru mjög rúmgóðar með góðu rúmi og að auki 2ja sæta sófa sem hægt er að breyta í svefnsófa. Svíturnar þarf að sérpanta.

Í garðinum er góð sólbaðsaðstaða og þaðan er útsýni fagurt yfir Atlantshafið. Þar er snakkbar sem og fyrirtaks veitingastaður „El Mirador“ þar sem hægt er að sitja úti að snæðingi undir beru lofti.
Skemmtidagskrá er á hótelinu, bæði á daginn og á kvöldin. Playa de las Americas Casino spilavítið er staðsett á hótelinu.

Í móttökunni komast hótelgestir í tölvu og þar með internet gegn greiðslu, en frítt þráðlaust net er í sameiginlegu rými.

„Los Meceys Buffet“ er veitingasalur hótelsins og er morgunverður og kvöldverður framreiddur þar. Kokkar veitingastaðarins elda ýmsa ljúffenga rétti fyrir framan matargesti og töfra fram nýjungar á hverju kvöldi.

Hótel H10 Gran Tinerfe er með hálfu fæði.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
20 mín akstur
Miðbær:
20 mín gangur að Parque Santiago
Strönd:
Við strönd
Veitingastaðir:
Á hóteli og allt um kring
Matvöruverslanir:
200 metrar

Aðstaða

Fjöldi hæða:
11
Gestamóttaka:
Sundlaug:
Líkamsrækt:
Tennisvöllur:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Þráðlaust net án endurgjalds í sameiginlegu rými
Lyfta:
Bar:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Herbergi taka að hámark þrjá
Fæði:
Hálft fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Ekki á herbergjum
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Þarf að panta og greiða fyrir
Minibar:
Skipt á rúmum:
3 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

Av. Rafael Puig Lluvina, 13, Costa Adeje, Tenerife
Spain


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar