Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fallegt, nýlega endurnýjað hótel í Akyarlar eða um 5 km frá Turkutreis. Tilvalið fyrir fjölskyldur - og allt innifalið!
Herbergin eru öll með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi , síma, smábar, hárþurrku og öryggishólfi.
Herbergin eru í 3 hæða húsum sem dreifast um hótelgarðinn. Í boði eru annars vegar herbergi með tvíbreiðu rúmi og koju og hins vegar herbergi með tvíbreiðu rúmi sem er aðskilið frá tveimur öðrum rúmum með tjaldi.
Í skemmtilegum sundlaugargarðinum eru tvær laugar, ein þeirra með vatnsrennibraut. Fyrir smáfólkið er barnaklúbbur fyrir 4-12 ára, barnalaug, sérstakt leiksvæði í sundlaugargarði og leikherbergi.
Á hótelinu er góð heilsulind, þar sem í boði eru heilsu- og vellíðunarmeðferðir, nudd, sauna og tyrkneskt bað. Auk þess vel búin líkamsræktaraðstaða. Einnig brimbrettaskóli og aðstaða til að leika tennis, borðtennis, fótbolta, minigolf, körfubolta, strandblak og margt fleira.
Á aðalveitingastað hótelsins er hlaðborð í morgun-, hádegis- og kvöldverði, en einnig er staður með tyrkneska rétti og annar með sjávarrétti. Snarlbar með létta rétti og sex barir, m.a. við sundlaugina og ströndina.
Hægt er að fá strand- sundlaugarhandklæði til afnota endurgjaldslaust.
Kemer Mevkii
Akyarlar
Turgutreis
Turkey