Kefaluka

Kefaluka

Glæsilegt hótel skammt utan við Akyarlar. Allt sem þú þarft til að njóta lífsins, skemmtilegur sundlaugargarður, einkaströnd, heilsulind og nokkrir góðir veitingastaðir.

Herbergin eru stór og glæsileg, búin loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, þráðlausu interneti (gegn gjaldi), smábar, öryggishólfi og síma. Svalir snúa að hafi eða sundlaugargarði. Á baðherbergjum eru baðkar, baðsloppur, inniskór og hárþurrka.

Í sundlaugagarðinum eru sundlaug og barnalaug, en einnig er hægt að fara á einkaströndina, þar sem er m.a. sérstakt svæði fyrir börnin. Á hótelinu er barnaklúbbur með fjölbreyttri afþreyingu fyrir smáfólkið og táningaklúbbur fyrir 13-16 ára.

Á hótelinu er heilsulind þar sem m.a. má fá heilsu- og vellíðunarmeðferðir, nuddpottur, tyrkneskt bað og sauna. Fyrir þá sem vilja taka á því er líkamsrækt. Einnig er á staðnum eða í næsta nágrenni hægt að iðka fjölda íþrótta, m.a. strandblak, fótbolta, körfubolta, pílukast, borðtennis, tennis, billjarð, badminton og margt fleira.

Valið stendur milli sex veitingastaða svo allir ættu að finna eitthvað fyrir sig. Morgun-, hádegis- og kvöldverður er borinn fram á hlaðborðsstaðnum Kefalonya, en auk þess eru staðir með kebab og aðra rétti frá eyjahafinu, ítalskan mat, mexíkóskan mat, sjávarrétti og staður með snarl og léttari rétti. Nokkrir barir eru á hótelinu og næturklúbbur.

 

Allar upplýsingar um „allt innifalið" pakkann á hótelinu á ensku

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
60 km
Miðbær:
17 km
Strönd:
við strönd
Veitingastaðir:
Á hóteli

Aðstaða

Fjöldi hæða:
7
Gestamóttaka:
Já, opin allan sólarhringinn
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Barnadagskrá:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Billiard:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já, á þar til gerðum svæðum án gjalds
Lyfta:
Bar:
Innilaug:
Skemmtidagskrá:

Vistarverur

Herbergjategund:
Hótelherbergi
Fæði:
Allt innifalið
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Nettenging:
Já, gegnum snúru og gegn gjaldi
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Já, án gjalds
Minibar:
Skipt á rúmum:
3 x í viku
Handklæðaskipti:
7 x í viku
Þrif:
7 x í viku

Heimilisfang

Baris Manco Cad no 63

Akyarlar

Turgutreis

Bodrum


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar