Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fjögurra stjörnu hótel á frábærum stað við ströndina með öll helstu þægindi - og allt innifalið! - Öll herbergi sem VITA býður uppá eru ný uppgerð.
Herbergi eru með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi og DVD spilara, þráðlausu interneti, smábar, öryggishólfi, síma og áhöldum til að laga te og kaffi. Svalir eru með húsgögnum og útsýni yfir hafið. Á baðherbergjum er bæði baðkar og sturta, og hárþurrka.
Í garðinum eru þrjár sundlaugar og rennibraut, þar af ein barnalaug og auk þess tvær innilaugar, önnur fyrir börn. Fyrir börn á aldrinum 4-12 ára er klúbbur.
Í heilsulindinni Mandala Spa er hægt að fá margs konar snyrti- og vellíðunarmeðferðir og fara í nuddpott, saunu eða tyrkneskt bað. Auk þess er líkamsrækt og á hótelinu og í næsta nágrenni er hægt að iðka fjölda íþrótta, m.a. strandblak, körfubolta, tennis, borðtennis og billjarð.
Á hótelinu eru 5 veitingastaðir, m.a. The Island með hlaðborð, Il Terrazzo með ítalska rétti, Chipura sjávarrétti og Saltanat með tyrkneskan mat. Auk þess eru fimm barir, m.a. einn á þaki hótelsins og diskóbar.
Bahcelievler Mevkii No:123 Turgutreis 48960, Bodrum Muğla