Sol Y Mar

Sol Y Mar

Frábært hótel á besta stað í miðbæ Calpe, við Arenal ströndina, skammt frá Peñón de Ifach klettinum.

Herbergin eru rúmgóð og í þeim eru flatskjár, þráðlaust internet, loftkæling og smábar.

Garðurinn er stór og með útsýnið yfir hafið og Peñón de Ifach klettinn. Auk sundlaugar er barnalaug og barnaklúbbur (klúbburinn opnar um miðjan júní og lokar um miðjan september). Gengið er beint niður á strönd.

Í heilsulindinni eru í boði fjöldinn allur af heilsu- og vellíðunarmeðferðum sem margar tengjast vatni. Líkamsræktin er stór og búin nýlegum og góðum tækjum, og einkaþjálfari er þér innan handar.

Á hótelinu eru veitingahúsin Anfora, með áherslu á sjávarrétti, og Abiss, sem er á efstu hæð hússins með dýrindis mat og frábært útsýni. Á kampavínsbarnum Le Champagneria geturðu valið milli 35 tegunda af kampavíni, cava og cava kokkteilum.

Í um það bil 500 metra fjarlægð frá hótelinu stoppar strætó sem gengur til Benidorm fjórum sinnum á dag.

  • Glæsilegt hótel á frábærum stað
  • Gott til að njóta lífsins


Hægt er að velja um að vera með morgunverð eða hálft fæði en hótelið er rómað fyrir frábær hlaðborð með gæða hráefni.

Fjarlægðir

Flugvöllur:
64 km
Miðbær:
Í miðbæ Calpe
Strönd:
Við strönd
Veitingastaðir:
Allt í kring
Matvöruverslanir:
Við hótelið

Aðstaða

Gestamóttaka:
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Já gegn gjaldi
Lyfta:
Bar:

Vistarverur

Herbergjategund:
Hótelherbergi
Fæði:
Morgunverður eða hálft fæði
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Sími:
Hárþurrka:
Öryggishólf:
Minibar:
Skipt á rúmum:
2 x í viku
Handklæðaskipti:
Daglega
Þrif:
Daglega

Heimilisfang

C/Benidorm 3

03710 Calpe

Alicante

Aðrar upplýsingar

Athugið að farþegar þurfa að leggja fram til hótelsins €150 tryggingu sem fæst til baka við brottför nema annað komi fram.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar