Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á fallegum stað situr Prainha Village og gnæfir yfir fiskimannaþorpið Alvor og Lagos flóann. Svæðið er um 35 hektarar og býður upp á ýmis konar þjónustu og afþreyingu. Í norð-austur hluta svæðisins er Prainha Club.
Svæðið liggur á klöpp við ströndina og myndar lítið þorp, umvafið fallegum görðum, flötum og blómabeðum. Þrátt fyrir að svæðið liggi á klöpp er einstaklega auðvelt aðgengi að ströndinni en lyfta flytur gesti niður klöppina og beint á ströndina. Í „þorpinu" eru fimm veitingastaðir en einn veitingastaðurinn er byggður inni í klöppinni. Miðsvæðis í þorpinu er matvöruverslun. Á klapparbrúninni er sundlaug, Atlantic pool, skellaga saltlaug hönnuð af tveimur þekktum portúgölskum arkitektum. Þá er boðið upp á barnapössun og mótorhjóla- og hjólaleigu.
Gestir hafa aðgang að heilsurækt ásamt því að geta látið dekra við sig í heilsulindinni.
Íbúðirnar eru rúmgóðar, vel útbúnar og nýtískulegar. Allar íbúðir eru með sundlaugarsýn og útsýni yfir svæðið.
Prainha er í samstarfi við golfvelli á svæðinu. Gestir geta bókað rástíma og fá þar að auki afslátt á samstarfsvelli.
Praia dos Três Irmãos 8500 072 Alvor