Prainha Village, raðhús

Prainha Village, raðhús

Á fallegum stað situr Prainha Village og gnæfir yfir fiskimannaþorpið Alvor og Lagos flóann. Svæðið er um 35 hektarar og býður upp á ýmis konar þjónustu og afþreyingu. Í austur hluta svæðisins er Prainha Village Raðhús.

  • Aðeins 10 mínútna akstur til Portimã, þar er H&M verslun
  • Fimm veitingastaðir á svæðinu
  • Tveir leikvellir, þrír tennisvellir og einn fótboltavöllur
  • Heilsurækt
  • Matvöruverslun á svæðinu


Svæðið liggur á klöpp við ströndina og myndar lítið þorp, umvafið fallegum görðum, flötum og blómabeðum. Þrátt fyrir að svæðið liggi á klöpp er einstaklega auðvelt aðgengi að ströndinni en lyfta flytur gesti niður klöppina og beint á ströndina. Í „þorpinu" eru fimm veitingastaðir en einn veitingastaðurinn er byggður inni í klöppinni. Miðsvæðis í þorpinu er matvöruverslun. Á klapparbrúninni er sundlaug, Atlantic pool, skellaga saltlaug hönnuð af tveimur þekktum portúgölskum arkitektum. Þá er boðið upp á barnapössun og mótorhjóla- og hjólaleigu.

Gestir hafa aðgang að heilsurækt ásamt því að geta látið dekra við sig í heilsulindinni.

Raðhúsin eru stór, rúmgóð, vel útbúin og nýtískuleg. Mikið er lagt í þægilegheit t.a.m. eru uppþvottavélar í húsunum. Úr stofunni er gengið í gegnum stóra rennihurð sem leiðir út í garð með einkasundlaug.

Prainha er í samstarfi við golfvelli á svæðinu. Gestir geta bókað rástíma og fá þar að auki afslátt á samstarfsvelli.

 

Fjarlægðir

Flugvöllur:
74 km
Miðbær:
2,5 km
Strönd:
300 m
Veitingastaðir:
5 veitingastaðir eru á svæðinu
Matvöruverslanir:
100 m

Aðstaða

Gestamóttaka:
Já, opin allan sólarhringinn
Sundlaug:
Barnasundlaug:
Líkamsrækt:
Barnaleiksvæði:
Tennisvöllur:
Heilsulind:
Veitingastaðir:
Nettenging:
Bar:
Innilaug:

Vistarverur

Herbergjategund:
Raðhús með einkasundlaug
Svalir/Verönd:
Loftkæling:
Sjónvarp:
Öryggishólf:
Já, gegn gjaldi
Ísskápur:
Kaffivél:
Brauðrist:
Örbylgjuofn:
Skipt á rúmum:
1x í viku
Handklæðaskipti:
2x í viku
Þrif:
5x í viku

Heimilisfang

Praia dos Três Irmãos 8500 072 Alvor


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar